
Með um 700 grömm af kókaíni falin innvortis
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu til þrettán mánaða fangelsisvistar vegna smygls á um 700 grömmum af kókaíni til landsins.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu til þrettán mánaða fangelsisvistar vegna smygls á um 700 grömmum af kókaíni til landsins.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla samtals um tvö þúsund töflum af Oxycontin og fleiri lyfseðilsskyldum efnum til landsins með flugi í febrúar síðastliðnum.
Ríkið hefur verið dæmt til að greiða Reykjavíkurborg tæplega 3,4 milljarða króna vegna ógreiddra framlaga þess fyrrnefnda úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Candido Alberto Ferral Abreu hefur hlotið fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til manndráps. Honum var gefið að sök að stinga annan mann tvisvar sinnum með hnífi í brjósthol við bílastæði í Breiðholti að kvöldi til í mars árið 2021.
Karlmaður um fertugt hlaut á dögunum átta mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundin til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að tæla fjórtán ára stúlku og peningafals árið 2021. Maðurinn var sýknaður af kröfu ákæruvaldsins sem var á þá leið að maðurinn yrði dæmdur fyrir tilraun til nauðgunar á stúlkunni.
Karlmanni, sem hefur langan sakaferil að baki, hefur verið dæmdur fjögurra mánaða hegningarauki við fyrri dóm. Hann var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa veitt manni hnéspark í höfuðið í verslunarmiðstöð í Reykjavík.
Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að Dagbjörtu Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri sem ákærð hefur verið fyrir manndráp í Bátavogi, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhald yfir henni rennur nú út þann 11. janúar á næsta ári.
Landsréttur staðfesti á föstudag dóm yfir karlmanni vegna umsáturseineltis hans í garð kvenkyns samstarfsfélaga. Maðurinn hlýtur tveggja mánaða fangelsisrefsingu, skilorðsbundna til tveggja ára. Þá er honum gert að greiða konunni 600 þúsund krónur, sem og annan máls- og áfrýjunarkostnað málsins.
Markús Ingólfur Eiríksson, fráfarandi forstjóri HSS hefur verið sendur í leyfi vegna ætlaðs eineltis. Til stóð að hann myndi starfa út skipunartíma sinn sem rennur út í febrúar.
Tveir karlmenn hafa hlotið fangelsisdóma fyrir fjölda brota, meðal annars vopnað rán sem framið var í Fossvogi og annað eins í Hamraborg skömmu síðar.
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás gegn tveimur konum og hótunarbrot, með því að hafa hótað þeim lífláti og talið niður sekúndur þar til að þær létust.
Héraðdómur Vesturlands dæmdi í dag í máli sem varðar líkamsárás sem átti sér stað í mars í fyrra á Akranesi.
Karlmaður hefur hlotið níutíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundið til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás og eignaspjöll sem áttu sér stað í Reykjavík á þessu ári.
Hver eldurinn kviknaði á fætur öðrum í ósamþykktu íbúðarhúsnæði, sem leiddi til þess að fleiri en einn týndi lífi. Svo margir voru drepnir á árinu að miðlæg rannsóknardeild lögreglu hafði í sumar þrjú manndrápsmál til rannsóknar í einu. Hér verður farið yfir helstu verkefni viðbragðsaðila á árinu, sem er að líða.
Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði?
Karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar refsingar fyrir að taka 1,4 milljónir króna út af stolnum greiðslukortum árið 2017.
Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi og fyrirliði KR, Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelld skattsvik.
Íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og stórfelld brot í nánu sambandi með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð fyrrverandi eiginkonu sinnar og barnsmóður með dreifingu á kynferðislegu myndefni á ýmsum miðlum og tölvupóstum til fólks.
Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Dagbjörtu Rúnarsdóttur, 42 ára gamalli konu, fyrir manndráp í Bátavogi í Reykjavík þann 23. september síðastliðinn.
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness um að ummæli Huga Halldórssonar í garð körfuboltamannsins Srdans Stojanovic séu dauð og ómerk. Hugi þarf hins vegar ekki að greiða Srdan miskabætur.
Landsréttur hefur sýknað Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, af ákæru fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar aðgerðarsinna fyrir utan Benzin Café á Grensásvegi árið 2018.
Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari sem fékk Porsche í jólagjöf frá unnusta sínum á dögunum þarf að greiða tíu milljónir króna vegna kaupa á fyrirtækinu Trimmform Berglindar.
Steingrímur Þór Ólafsson hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fíkniefnabrot sem tengdust umfangsmikilli amfetamínsframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Steingrímur Þór var sýknaður af því að hafa geymt fimm lítra af amfetamínbasa. Landsréttur kvað upp dóm sinn á þriðja tímanum.
Endurupptökudómur hefur hafnað kröfu um að taka upp faðernismál sem móðir höfðaði árið 1959 gegn tveimur karlmönnum. Móðirin og mennirnir tveir eru öll látin, en sonur konunnar, sem faðernismálið varðar, krafðist þess að það yrði tekið upp á ný.
Maður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að ganga inn á fjórtán ára stúlku í kvennaklefa sundlaugar. Þar hafi hann gert ummæli við líkama hennar, boðið henni að sjá sinn og byrjað að girða niður um sig.
Sigurður Kristinn Árnason hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar og greiðslu tæplega 197 milljóna króna sektar, fyrir skattalagabrot í tengslum við rekstur þriggja félaga og eigin framtöl.
Talskona Stígamóta segir nýlega dóma þar sem karlmenn voru dæmdir fyrir samræði við börn en ekki nauðgun mikla afturför. Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir mikilvægt dómstólar taki tillit til valdaójafnvægis milli barna og fullorðinna.
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar um að sýkna Vátryggingafélag Íslands, VÍS, af kröfum fyrrverandi sérsveitarmanns sem glímdi við sálfræðilegar afleiðingar þess að taka þátt í aðgerðum sérsveitarinnar sem leiddu til dauða manns í Árbæ í Reykjavík í desember 2013.
Fyrrverandi starfsmaður grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa á nokkurra mánaða tímabili fyrir um tveimur árum ítrekað haft samræði við stúlku í níunda bekk skólans. Hann var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun.
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga konu í hjónarúminu á heimili sínu sumarið 2019. Krafist er fjögurra milljóna króna í miskabætur fyrir hönd konunnar.