Félag prestvígðra kvenna fer fram á afsögn formanns Prestafélags Íslands
Félag prestvígðra kvenna fer fram á afsögn formanns Prestafélags Íslands og sakar hann um að hafa tekið afstöðu með séra Gunnari Sigurjónssyni, sem verður áminntur fyrir ósæmilega hegðun gagnvart samstarfskonum í Digranes- og Hjallaprestakalli.