Meistaraliðinu er spáð fjórða sætinu í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport
„Ég geri ráð fyrir að þær forsendur sem liggja að baki þessari spá sé undirbúningstímabilið og hvernig hin liðin eru að spila. Ég veit ekki hvort þetta sé raunhæf spá eða ekki – en spár eru skemmtilegar og þær gefa vísbendingar,“ sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Breiðabliks sem er spáð fjórða sætinu í Pepsi-deild karla af sérfræðingum Stöðvar 2 sport. Rætt var við Ólaf í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport sem sýndur var í gær og er umfjöllunin um liðið í heild sinni í myndbandinu.