Tárvotur Björgvin Páll: „Held við séum bensínlausir andlega heldur en eitthvað annað“
„Frábært tímabil endar nánast eins og martröð,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Íslandsmeistara Vals, eftir hreint út sagt ótrúlegt tap Vals gegn Haukum á Ásvöllum í kvöld, lokatölur 33-14. Tapið þýðir að Íslandsmeistararnir eru á leið í sumarfrí.