Ferðaþjónustan ósátt

Aðgangseyrir að baðlónum hækkar nái áform ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Í fjármálaáætlun sem var birt í gær er boðað að aðgangseyrir að baðlónum verði færður úr neðra ellefu prósenta virðisaukaskattþrepi í hið almenna tuttugu og fjögurra prósenta þrep. Í áætluninni eru einnig ítrekuð áform um gjaldtöku vegna heimsóknar á ferðamannastaði, eða um svokallað innviðagjald, sem bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn munu þurfa að greiða.

6
04:54

Vinsælt í flokknum Fréttir