Sá fyrsti frá Íslandi til að vinna mótið
Ólíver Elí Björnsson, sextán ára kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, gerði sér lítið fyrir og vann opna breska áhugamannamót pilta í golfi. Pilturinn hefur hlotið verðskuldaða athygli í kjölfarið og stefnir langt í íþróttinni.