Gleðifréttir fyrir skíðagarpa

Vonir eru bundnar við að hægt verði að opna í Bláfjöllum eftir viku. Snjóframleiða er nú í fullum gangi í frostatíðinni og gengur vel. Gríðarleg spenna ríkir að sögn rekstrarstjóra eftir erfiðan vetur en sökum hlýinda hafa stærri brekkurnar ekkert verið opnaðar. Svo mikil er spennan að einn brettakappi tók forskot á sæluna í dag líkt og sést á þessum myndum - gekk upp eina brekkuna og renndi sér niður.

14
01:00

Vinsælt í flokknum Fréttir