Í gæsluvarðhald eftir árásina í Borgarholtsskóla
Nítján ára piltur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna árásar í Borgarholtsskóla í gær. Lögreglan fór fram á gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum drengjum til viðbótar. Ekki var fallist á það en báðir eru undir lögaldri. Sex voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir árásina í gær og miðar rannsókn málsins vel að sögn lögreglu.