Elísa Viðarsdóttir um ÍTF: „Fólk gerir mistök en mistök trekk í trekk eru ekki boðleg“
„Það er náttúrulega bara trekk í trekk vonbrigði með ÍTF. Við vildum taka höndum saman og lýsa yfir okkur óánægju með þessi vinnubrögð,“ sagði Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Íslands- og bikarmeistara Vals, um ákvörðun fyrirliða liða í Bestu deild kvenna að mæta ekki á fund ÍTF þar sem taka átti upp kynningarefni fyrir Bestu deild kvenna.