Flóðbylgjuviðvörun gefin út í Japan
Óttast er að annar stór skjálfti fylgi í kjölfarið á þeim sem reið yfir undan ströndum Japans í morgun. Skjálftinn mældist 7,5 stig og upptökin voru á hafsbotni við norðausturströnd landsins. Flóðbylgjuviðvörun var gefin út, varað var við því að ölduhæð gæti náð þremur metrum og yfirvöld báðu þúsundir á mögulegu áhrifasvæði um að koma sér frá ströndinni. Betur fór en á horfðist þar sem stærstu öldurnar voru áttatíu sentimetrar og ekki hafa borist fregnir af slysum á fólki eða meiriháttar tjóni. Auknar líkur eru þó taldar á öðrum skjálfta og hefur fólk verið beðið um að fylgjast með. Fimmtán ár eru síðan átján þúsund fórust þegar stór flóðbylgja skall á svipuðu svæði í Japan og leiddi meðal annars til Fukushima-kjarnorkuslyssins.