Fótbolti

„Þetta hefði getað komið fyrir mig“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Raphinha fagnar marki með Lamine Yamal en þessir tveir hafa verið frábærir á þessu tímabili.
Raphinha fagnar marki með Lamine Yamal en þessir tveir hafa verið frábærir á þessu tímabili. AP/Joan Monfort

Raphinha, framherji Barcelona, sagði að það hefði verið erfitt fyrir hann að spila leikinn gegn Aston Villa í Meistaradeild UEFA í gærkvöldi eftir að hafa frétt af andláti Jesús de Miguel, framherja Tenerife.

De Miguel lést eftir að hafa farið í hjartastopp í kjölfar áreksturs við Jesús Owono, markvörð Real Oviedo, á mánudagskvöld. Hann var þrítugur.

Spænska knattspyrnusambandið tilkynnti að engir leikir yrðu spilaðir innanlands á þriðjudag, miðvikudag eða fimmtudag á meðan spænski fótboltinn syrgir De Miguel.

Leikir Meistaradeildarinnar á þriðjudag fóru þó fram og skoraði Raphinha tvö mörk þegar Barcelona vann enska úrvalsdeildarliðið Villa 3-0 á Nývangi.

„Hvar sem [De Miguel] er vona ég að hann finni sína leið,“ sagði Raphinha við Movistar eftir leikinn. 

„Ég vil senda fjölskyldu hans styrk og í dag vil ég ekki tala um fótbolta. Eftir að ég sá fréttirnar leið mér ekki vel. Þegar öllu er á botninn hvolft var hann knattspyrnumaður eins og við. Þetta hefði getað komið fyrir hvert okkar sem er. Þetta hefði getað komið fyrir mig,“ sagði Raphinha.

„Það er mjög erfitt að fara út á völlinn og spila leik við þessar aðstæður. Hann var leikmaður á sama aldri og ég. Kannski er það ástæðan fyrir því að þetta hafði svona mikil áhrif á mig,“ sagði Raphinha

Í virðingarskyni var söngur Meistaradeildarinnar ekki leikinn fyrir upphafsflautið á Nývangi, heldur var haldin mínútuþögn til minningar um De Miguel.

Hansi Flick, þjálfari Barça, sagði að fréttirnar hefðu fengið mikið á Raphinha.

„Það sem gerðist á Tenerife held ég að hafi haft mikil áhrif á hann, eins og á okkur öll,“ sagði Flick á blaðamannafundi eftir leikinn.

„Við vottum fjölskyldunni, félaginu, vinunum og öllum okkar dýpstu samúð. Þetta er mikill harmleikur. Ég held að þetta hafi haft mikil áhrif á hann,“ sagði Flick

Þrátt fyrir allt tókst Raphinha að halda áfram ótrúlegu formi sínu í upphafi tímabilsins og skoraði tvö mörk eftir að Lamine Yamal hafði opnað markareikninginn, en með sigrinum batt Barça enda á fullkomna byrjun Villa í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

Raphinha hefur nú skorað 19 mörk í öllum keppnum á tímabilinu – meira en nokkur annar í fimm sterkustu deildum Evrópu – og Flick treystir því að hann haldi áfram að skora jafn ört.

„Ég efast ekkert um [að hann haldi þessum takti],“ sagði hann. „Hann er í góðu skapi og á góðu skriði núna. Ég er virkilega ánægður með hann. Hann er frábær leikmaður,“ sagði Flick.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×