Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 18:12 Júlíus Magnússon heldur áfram að gera það gott með Elfsborg. Mynd/Elfsborg Júlíus Magnússon heldur áfram að gera góða hluti með liði Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni en hann skoraði annan leikinn í röð fyrir félagið í dag, í 2-1 sigri gegn Örgryte.
Júlíus var ekki í landsliðshópi síns gamla þjálfara Arnars Gunnlaugssonar fyrir leikina fjóra í haust en hefur eflaust aukið möguleika sína á að komast í hópinn sem mætir Búlgaríu og Lúxemborg nú um miðjan nóvember. Hann skoraði gegn AIK í síðustu umferð og jafnaði svo metin gegn Örgryte í dag með föstu skoti af vítateigslínunni, á 65. mínútu, eftir að Tobias Sana hafði komið gestunum yfir. Staðan var svo jöfn fram á þriðju mínútu uppbótartíma þegar Leo Östman skoraði sigurmark Elfsborgar. Júlíus lék allan leikinn og Ari Sigurpálsson var einnig í byrjunarliði Elfsborgar en var skipt af velli eftir að Júlíus jafnaði metin. Elfsborg er nú með 46 stig í 5. sæti, þegar þrjár umferðir eru eftir, en Örgryte er næstneðst. Leikur hjá Hirti og Kolbeini lengi stopp vegna óláta Miklar óeirðir voru á leik IFK Gautaborgar og Häcken og var leikurinn stopp í langa stund og leikmenn sendir inn til búningsklefa, eftir að kveikt hafði verið á blysum og lögreglan látið til skarar skríða. Stuðningsmenn Gautaborgar sáust henda hlutum að lögreglunni og kalla hana „fótboltamorðingja“. Leikurinn gat þó á endanum haldið áfram. Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn í vörn IFK Gautaborgar sem tapaði 1-0 í þessum útileik eftir sjálfsmark Jonas Bager, félaga Hjartar í vörninni, á 16. mínútu. Kolbeinn Þórðarson kom inná sem varamaður á 34. mínútu en varð að gera sér að góðu að vera svo skipt af velli á 69. mínútu. Gautaborg er með 38 stig í 9. sæti en Häcken er nú þremur stigum fyrir ofan Elfsborg, í 4. sæti.
Sænski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira