Veður

Víð­áttu­mikil lægð sem grynnist smám saman

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Skúrir og slydduél á stöku stað.
Skúrir og slydduél á stöku stað. Vísir/Anton Brink

Norðaustur af Hvarfi er víðáttumikil lægð sem situr þar og grynnist smám saman, að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Sunnan og suðvestanátt í dag og næstu daga, fimm til þrettán metrar á sekúndu, almennt gola eða kaldi.

Skúrir og jafnvel slydduél á stöku stað, en skýjað með köflum á Norðaustur- og Austurlandi. Fremur milt í veðri. Hiti tvö til átta stig og skúraleiðingar vestantil í dag annars þurrt með köflum fyrir norðan og austan.

Þar sem bjart er að næturlagi og hægur vindur, geta myndast aðstæður fyrir næturfrost með lúmskri hálku. Eins eru líkur á að á sunnudag verði úrkoman vestantil á landinu nær samfelld rigning og að sama skapi hlýnar líka dálítið á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×