Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 29. október 2026 09:19 Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, Harpa Þorláksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Nóa Síríus, Halla Björk Vigfúsdóttir, þroskaþjálfi og inngildandi verkstjóri verkefnisins, Rakel Reynisdóttir, mannauðssérfræðingur og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður stjórnar Festu - miðstöðvar um sjálfbærni. Anton Brink Nói Síríus hlýtur hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu á sviði sjálfbærni árið 2026 fyrir markvisst og árangursríkt starf að félagslegri sjálfbærni. Með því að aðlaga verkefni, þjálfun og vinnuumhverfi að þörfum einstaklinga með frábrugðna starfsorku hefur fyrirtækið skapað varanleg störf innan hefðbundinnar framleiðslu.
Í umsögn dómnefndar kemur fram að styrkur verkefnisins felist í því að vinnustaðurinn sé aðlagaður að fólkinu. Faglegur stuðningur, einfaldar lausnir og breytt viðhorf hafi gert starfsfólki kleift að takast á við verkefni af auknu öryggi og sjálfstæði. Áhrifin nái jafnframt til vinnustaðarins alls, þar sem samskipti og starfsánægja hafi aukist og fjölbreytileiki orðið sýnilegur styrkleiki. Harpa Þorláksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Nóa Síríus, segir viðurkenninguna fyrst og fremst tilheyra starfsfólkinu. „Það sem þarf er að sjá einstaklinginn og spyrja: Hvað þarf að breytast í umhverfinu svo hann geti þetta?“ Harpa og Halla Björk tóku við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn í gær.Anton Brink „Við erum virkilega stolt og þakklát. Fólkið hjá Nóa Síríus er með stórt hjarta og opinn hug og án þess hefði þetta aldrei gengið. Hún er líka staðfesting á að við séum á réttri leið og hvatning til að halda áfram.“ „Allir vilja tilheyra og ef við gefum fólki tækifæri, verkfæri og réttar aðstæður, þá blómstrar það.“ Fólk með frábrugðna starfsorku hefur lengi verið hluti af starfsmannahópi Nóa Síríus. Harpa nefnir að einn starfsmaður hafi nýlega fagnað fjörutíu ára starfsafmæli. „Þetta hefur alltaf verið hluti af sjálfsmynd fyrirtækisins, en við sáum að við gætum gert betur og gert þetta meira markvisst.“ Byggt á áratuga reynslu Fyrir um þremur árum hóf fyrirtækið samstarf við Vinnumálastofnun í gegnum verkefnið Atvinna með stuðningi. Harpa segir markmiðið vera að fólk geti starfað á almennum vinnumarkaði og tekið virkan þátt í daglegum rekstri. Viktor Freyr Til að styðja við það var stofnað nýtt hlutverk inngildandi verkstjóra og Halla Björk Vigfúsdóttir, menntaður þroskaþjálfi og verkefnisstjóri verkefnisins, ráðin til starfa. „Við vildum finna raunveruleg verkefni í framleiðslunni. Það er að segja störf sem skipta máli fyrir reksturinn en ekki bjóða bara upp á sérverkefni á hliðarlínunni. Það var líka mjög mikilvægt að undirbúa stjórnendur og samstarfsfólk vel með fræðslu og opnu samtali til að draga úr efasemdum og misskilningi,“ segir Harpa. „Þar sem við erum matvælafyrirtæki var mjög mikilvægt fyrir okkur að halda gæðakröfum. Þetta snýst ekki um að lækka kröfur heldur skapa réttar aðstæður til að ná þeim.“ Hún segir verkefnið hafa kallað á lærdóm og þolinmæði. „Sumar ráðningar gengu ekki upp og það tók tíma að finna rétta leið. Stærsta áskorunin var þó ekki geta starfsfólksins, heldur að breyta hugmyndum og væntingum um hvað væri mögulegt. Við lærðum af hverju skrefi og héldum áfram.“ Einfaldar lausnir opna ný tækifæri Halla Björk segir að aðlögun vinnustaðar þurfi hvorki að vera flókin né kostnaðarsöm. Oft geti lítil breyting á verklagi ráðið úrslitum um hvort einstaklingur geti sinnt verkefni sjálfstætt. „Lausnirnar eru oft ótrúlega einfaldar og kosta lítið sem ekkert. Það sem þarf er að sjá einstaklinginn og spyrja: Hvað þarf að breytast í umhverfinu svo hann geti þetta? Við þurftum að vera tilbúin að sleppa aðeins tökunum á vanaföstum verkferlum, án þess að slaka nokkuð á gæðakröfum.“ Viktor Freyr Hún nefnir sem dæmi starfsmann sem átti erfitt með að lesa tölur af vigt. Lausnin fólst í því að núllstilla vigtina með fullum poka í stað tóms. Þannig gat starfsmaðurinn unnið eftir plús- og mínusmerkjum í stað talna. Í öðru tilviki hafði starfsmaður unnið lengi hjá fyrirtækinu án þess að treysta sér í konfektpökkun. „Við bjuggum til einfalt myndblað sem sýnir fjölda mola af hverri tegund sem átti að fara í kassann. Með því móti gat starfsmaðurinn fyllilega sinnt þessu starfi og þar með fjölgað þeim verkefnum sem hann sinnti.“ Þegar annar starfsmaður átti erfitt með að muna hvernig pakkningar úr vél ættu að snúa var sýnishorn sett við hlið hans. „Nú gengur allt eins og í sögu,“ segir Halla Björk. Hún leggur áherslu á að fólk fái svigrúm til að sýna hæfni sína í verki og uppgötva eigin styrkleika. „Mikilvægt er að veita þeim svigrúm til að móta sína eigin mynd af starfsgetu sinni, á eigin forsendum, í stað þess að hún sé skilgreind út frá rótgrónum hugmyndum og staðalmyndum samfélagsins.“ Sjónrænt skipulag og einstaklingsmiðuð þjálfun hafi meðal annars gert starfsmanni sem í upphafi gat ekki unnið einum kleift að vinna sjálfstætt. „Það sem kom skemmtilega á óvart var að margar lausnirnar bættu vinnuna fyrir allan hópinn, ekki aðeins þá sem þær voru hugsaðar fyrir.“ Viktor Freyr Faglegur stuðningur skiptir sköpum Harpa segir ráðningu Höllu Bjarkar hafa verið lykilatriði í þróun verkefnisins. Inngildandi verkstjóri finni verkefni sem henti hverjum og einum, þrói lausnir og þjálfun og tryggi að gæðakröfum sé fylgt. „En hún vinnur ekki bara með teyminu. Hún vinnur náið með stjórnendum og samstarfsfólki í framleiðslunni og byggir brú á milli teymisins og vinnustaðarins í heild.“ Stuðningurinn skapi öryggi fyrir starfsfólk og auðveldi stjórnendum að takast á við ný verkefni. „Fyrir starfsfólkið þýðir það öryggi, því það hefur alltaf einhvern sem þekkir það og það getur leitað til. Fyrir stjórnendur þýðir það fagleg ráðgjöf og stuðningur, sem dregur úr ótta og misskilningi.“ Sama hugsun birtist víðar í starfseminni, meðal annars í íslenskukennslu og fræðslu fyrir erlent samstarfsfólk. Halla Björk hafi einnig aðstoðað fólk við að rata um íslenskt samfélag, allt frá því að bóka læknistíma til þess að finna ökukennara sem tali tungumál viðkomandi. „Þetta eru lítil skref, en þau ráða úrslitum um hvort fólk upplifi að það tilheyri,“ segir Harpa. Stjórnendur sækjast eftir starfsfólkinu Fimm einstaklingar starfa nú í teyminu í mismunandi deildum framleiðslunnar. Harpa og Halla Björk segja viðhorfin til verkefnisins hafa breyst mikið frá upphafi, þegar efasemdir voru um hvort einstaklingarnir gætu sinnt hefðbundnum störfum án stöðugrar aðstoðar. „Þegar álag er á línunni kemur starfsmaður úr teyminu inn til að létta undir og stjórnendur keppast nú um að fá fólk úr hópnum til sín. Það segir eiginlega allt sem segja þarf. Þau eru ekki lengur álitin sérstakt verkefni, heldur einfaldlega verðmætir samstarfsmenn sem hafa raunveruleg áhrif á framleiðsluna og árangur fyrirtækisins.“ Ávinningurinn birtist bæði í daglegri framleiðslu og samskiptum starfsfólks. „Álag hefur minnkað og skilvirkni aukist. Páskaeggjunum hefur til dæmis aldrei verið jafn vel raðað. Við sjáum meiri samkennd og sterkari tengsl, líka í kaffitímum, hádegishléum og á viðburðum fyrirtækisins.“ Þær segja niðurstöður vinnustaðagreininga jafnframt sýna að starfsfólk sé stolt af áherslum fyrirtækisins á fjölbreytni og inngildingu. „Breytingin varð ekki bara hjá einstaklingunum, hún varð í allri menningunni. Umræðan snýst ekki lengur um hvort fólk geti tekið þátt, heldur hvar hæfileikar þess nýtast best. Þá veit maður að menningarbreyting hefur átt sér stað.“ Sjálfbærnin þarf að birtast í daglegum rekstri Harpa segir skýra sjálfbærnistefnu mikilvæga til að tryggja að starfið sé markvisst og mælanlegt. Félagslegi þátturinn fái þó stundum minni athygli en aðrir þættir sjálfbærni. Viktor Freyr „Við vitum að umhverfismál og góðir stjórnarhættir skipta miklu máli, en við höfum lært að stærstu áhrifin verða oft hjá fólkinu. Félagslegi þátturinn gleymist oft í umræðunni, en án fólks er enginn rekstur. Vinnustaðir móta sjálfsmynd, sjálfstraust og lífsgæði fólks.“ Stefnan þurfi jafnframt að birtast í verki. „Inngilding og sjálfbærni þurfa að vera hluti af daglegum rekstri, ekki bara stefna á blaði. Annars skila þær ekki árangri.“ Nói Síríus hyggst halda áfram að þróa verkefnið, mæla árangur og miðla reynslunni. Fyrirtækið hefur þegar tekið á móti aðildarfélögum Festu og kynnt verkefnið á erlendum vettvangi. „Ef viðurkenningin verður til þess að fleiri fyrirtæki opni dyrnar, þá er tilganginum náð,“ segir Harpa. Ráð hennar til fyrirtækja sem vilja fara svipaða leið eru fyrst og fremst að byrja. Tryggja faglega forystu og gefa fræðslu og opnum samskiptum nægt vægi. „Stærsta hindrunin er oft huglæg en ekki raunveruleg. Það skiptir miklu máli að vera með gott fólk sem leiðir verkefnið áfram og tryggir að starfið sé aðlagað að manneskjunni.“ „Inngilding er ekki góðgerðastarfsemi eða kostnaðarsöm sérlausn. Hún er fjárfesting í fólki sem skilar sér í aukinni framleiðni, minna álagi og sterkari vinnustaðamenningu. Reynslan okkar sýnir að þegar fyrirtæki fjárfestir í fólki skilar það sér margfalt til baka.“ Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026 var birtur í gær við hátíðlega athöfn í Hörpu og verðlaunin afhent. Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Sjálfbærni Mannauðsmál Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira