Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 24. október 2026 16:47 Hólmar Örn Eyjólfsson hefur lagt skóna á hilluna. vísir/Anton Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, var á bekknum í dag sem aðstoðarþjálfari Vals í leik sem átti að hafa verið hans síðasti leikur á ferlinum sem leikmaður. Töpuðu Valsmenn 6-0 fyrir Stjörnunni í Garðabænum og var ekki um neinn draumaleik að ræða á þessum tímamótum hjá Hólmari Erni.
Hólmar Örn segir það hafa verið sína ósk að fá að vera á bekknum í þjálfarateyminu í þessum leik og hafi Chris Brazell, þjálfari Vals, gefið góðfúslegt leyfi fyrir því. „Ég talaði við Chris fyrir nokkrum dögum og spurði hvort þetta væri möguleiki fyrir mig að fá að prófa að sjá leikinn frá hliðarlínunni og vera aðstoðarþjálfari. En endirinn á ferlinum og mögulega byrjunin á öðrum, hún byrjaði ekki eins og maður hefði kosið sér en það var gaman að prófa það,“ sagði Hólmar. Aðspurður hvort það blundi í honum þjálfari hafði Hólmar Örn þetta að segja. „Já, já. Maður ætlar ekki að loka neinum dyrum allavega. Maður sér til á næstu vikum hvað maður tekur sér fyrir hendur,“ sagði Hólmar. Valsmenn hafa átt vont tímabil í ár og endaði liðið í 8. sæti Bestu deildarinnar eftir úrslit dagsins. Hólmar Örn segir þetta hafa verið erfitt tímabil. „Þetta er búið að vera erfitt. Þetta er búið að vera upp og niður og við höfum oft og tíðum þurft að grafa djúpt. Við höfum lent í mörgum meiðslum og öðrum áföllum í gegnum allt í rauninni. Við höfum samt náð oft og tíðum að rífa okkur saman og sýna góða frammistöðu en svo hefur, eins og gerðist í dag, of oft allt hrunið það sem við erum að gera. Það er eitthvað sem við þurfum bara að skoða í framhaldinu og reyna að bæta úr fyrir næsta ár,“ sagði Hólmar. Hólmar Örn svaraði því neitandi aðspurður út í hvort hann yrði í herbúðum Vals á næsta tímabili í öðru hlutverki. Hólmar Örn hefur nú lokið farsælum ferli sem fótboltamaður. Hann hefur verið landsliðsmaður og atvinnumaður frá unglingsaldri og hefur marga fjöruna sopið í boltanum. Var Hólmar Örn því að lokum spurður hvernig hann liti á ferilinn. „Þetta er búið að vera virkilega gaman og eitthvað sem maður horfir til baka á og er bara stoltur af. Mikið af augnablikum sem mann dreymdi um þegar maður var yngri sem maður náði að upplifa og maður getur gengið nokkuð stoltur frá borði. Nú þarf maður bara að finna kraftinn og demba sér í önnur verkefni,“ sagði Hólmar.
Besta deild karla Valur Stjarnan Mest lesið Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum Handbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn