Áskorun

Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hefur þú einhvern tíma pælt í því hvers vegna lyklaborðin á tölvum og símum eru ekki í stafrófsröð? Eða hvers vegna stöfunum er raðað upp eins og þeim er raðað?
Hefur þú einhvern tíma pælt í því hvers vegna lyklaborðin á tölvum og símum eru ekki í stafrófsröð? Eða hvers vegna stöfunum er raðað upp eins og þeim er raðað? Vísir/Getty

Er einhverjum sem finnst stafaröðunin á lyklaborðinu eða símum meika sens? Hvers vegna er það til dæmis ekki í stafrófsröð?

Frekar undarlegt er það ekki?

Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamaðurinn ruglaði stöfunum viljandi til að hægja á fólki.

Þetta er góð saga. Málið er bara að hún er líklega ekki alveg sönn.

Þetta er undarlegt... er léttur afþreyingarpistill á laugardögum. 

Þetta er undarlegt... pistillinn er til gamans fyrir okkur venjulega fólkið. 

(Of gáfaða fólkið veit hins vegar eflaust betur og meira).

Fyrst í stafrófsröð

Maðurinn á bak við lyklaborðið sem við höfum notað í 150 ár var prentari, blaðaútgefandi, stjórnmálamaður og áhugauppfinningamaður í Milwaukee í Bandaríkjunum, Christopher Sholes.

Árið 1868 fékk hann einkaleyfi á ritvél.

Lyklaborðið var í stafrófsröð.

Á næstu árum var lyklunum endurraðað aftur og aftur.   Spurningin er hvers vegna?

Byssuframleiðendurnir taka við

Sholes seldi uppfinninguna byssuframleiðandanum Remington.

Remington var klókt fyrirtæki. Það bauð upp á vélritunarnámskeið. Þeir sem lærðu á Remington vildu bara vinna á Remington og fyrirtæki sem vildu ráða vant fólk þurftu því að kaupa Remington-vélar.

Árið 1893 sameinuðust stærstu ritvélaframleiðendurnir og þá varð QWERTY-staðallinn.

Það skondna er að Sholes var sjálfur aldrei sannfærður um að QWERTY væri best. Hann hélt áfram að fikta og sótti um einkaleyfi á lyklaborði sem byrjaði á XPMCH, ári áður en hann dó.

Deilur hagfræðinganna

Á fjórða áratugnum kom August Dvorak fram með lyklaborð sem átti að vera mun fljótlegra. Það náði aldrei fótfestu.

Árið 1985 sagði hagfræðingurinn Paul David að QWERTY sýndi hvernig samfélög geta setið föst í verri lausn. Allir höfðu lært á QWERTY, svo það borgaði sig ekki að skipta.

Ný kenning 2011

Það er ekki hægt að lista upp allar kenningar eða deilur um hvers vegna QWERTY-lyklaborðið festist svona rækilega í sessi.

En árið 2011 kom fram ný kenning fræðimanna við Kyoto-háskóla. Sem sögðu fyrstu notendur ritvélarinnar hafa verið símritarar – en ekki ritarar – sem tóku á móti skeytum í morsi og skrifuðu þau niður jafnóðum.

Símriturunum þótti stafrófsröðin óþægileg og því var lyklunum raðað upp á nýtt: QWERTY … og svo framvegis. Því sumir stafir í morsi hljóma svo líkt að betra var að styðjast við lyklaborð með stafarugli.

Staðan í dag:

Að árið er 2026. Alla daga pikkum við á lyklaborðið í tölvunni eða í símanum okkar. Og erum fljót að því.

Enn í stafaruglinu QWERTY og svo framvegis. Sem Íslendingar hafa meira að segja ruglað enn meir með því að bæta við Þ, Æ, Ð og Ö.

Frekar undarlegt er það ekki…?

Ítarefni:

Smithsonian Magazine: The QWERTY Keyboard Will Never Die. Where Did the 150-Year-Old Design Come From?

Paul A. David (1985): Clio and the Economics of QWERTY (American Economic Review, JSTOR)

Yasuoka og Yasuoka, Kyoto-háskóli (2011): On the Prehistory of QWERTY


Tengdar fréttir

Hvað veistu um… Nylon?

Nylon var íslensk stúlknasveit sem sló rækilega í gegn á Íslandi eftir að hún var stofnuð árið 2004. Sveitin varð fljótt ein sú vinsælasta í íslensku popplífi, gaf út fjölda vinsælla laga og naut mikilla vinsælda, sérstaklega meðal yngri hlustenda.

Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin?

Nóbelsverðlaunin eru meðal virtustu alþjóðlegu verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til vísinda, bókmennta og friðar. Þau byggja á erfðaskrá sænska uppfinningamannsins og iðnjöfursins Alfreds Nobel og voru fyrst veitt árið 1901. Verðlaun eru veitt í eðlisfræði, efnafræði, lífeðlisfræði eða læknisfræði, bókmenntum og friðarstarfi.

Hvað veistu um... Pólland?

Pólland er í hópi stærri og fjölmennari ríkja Evrópu, þekkt fyrir sögu sína, fallegar borgir og sterka menningarhefð.

Hvað veistu um… kvik­mynda­hátíðir?

Kvikmyndahátíðir eru mikilvægur vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk víðs vegar að úr heiminum til að sýna verk sín, hitta samstarfsfólk og kynna nýjar hugmyndir og sjónarhorn.

Hvað veistu um… Djúpa­vog?

Djúpivogur er lítið og fallegt þorp á sunnanverðum Austfjörðum, þekkt fyrir rólegt yfirbragð, fallegt umhverfi og sterka tengingu við sjávarútveg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.