Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2026 16:44 Belgarnir Ivo Steyaert og Merijn Geerts deila heimsmetin. @bigdogbackyardultra Belgarnir Ivo Steyaert og Merijn Geerts hættu báðir á sama tíma á heimsmeistaramótinu í bakgarðshlaupum og deila því bæði heimsmeistaratitlinum og heimsmetinu.
Þeir kláruðu 124 hringi og hlupu því alls 831,5 kílómetra þessa rúmu fimm sólarhringa.Heimsmetið var áður 119 hringir og í eigu Ástralans Phil Gore en Belgarnir héldu áfram þrátt fyrir að hafa slegið það á 120. hring og engin önnur þjóð væri enn að hlaupa.Það var þó enginn formlegur sigurvegari eins og venjan er því þeir hættu báðir á sama tíma.Félagarnir urðu árið 2022 fyrstir til að klára hundrað hringi og árið 2024 hlupu þeir 110 hringi með félaga sínum Frank Gielen og hættu allir þrír á sama tíma. Þekkt saga frá því hlaupi var að Ivo týndist í skóhinu og Merijn fór til baka að leita að honum. View this post on Instagram A post shared by Tristan (@photosby_tristan) Bandaríkin eru heimsmeistarar í stigum þrátt fyrir að besti maður þeirra hafi bara klárað 107 hringi. Bandaríska landsliðið kláraði saman 1120 hringi og Belgarnir áttu ekki möguleika á því að ná því.Þeir náðu ekki Áströlum því landslið þeirra kláraði 1069 hringi saman en ástralski meistarinn kláraði 87 hringi.Belgíska landsliðið endaði með 1058 hringi samanlagt og þeir félagar hefðu þurft að klára fimm hringi í viðbót til að komast upp í annað sætið.Heimsmeistaramót landsliða í Big Dog’s Backyard Ultra hófst laugardaginn 17. október en hvert landslið var með fimmtán hlaupara. Alls tóku 67 lönd þátt um allan heim eða alls 990 hlauparar.Hlaupið í hverju landi fylgdi hefðbundnu bakgarðshlaupsfyrirkomulagi sem Gary Cantrell, einnig þekktur sem Laz og frægur fyrir Barkley-maraþonin, bjó til.Á heila tímanum, á hverri klukkustund, leggja hlaupararnir af stað í 6,7 kílómetra hring, sem almennt er kallaður „yard“. Hlaupararnir halda áfram þar til þeir ná ekki að ljúka hring innan tímamarka eða geta ekki mætt á ráslínu fyrir næsta hring. Hlaupið heldur áfram þar til næstsíðasti keppandinn, eða „aðstoðarmaðurinn“, hættir og sá síðasti sem eftir stendur lýkur heilum hring einn síns liðs.Samkvæmt reglunum er enginn sigurvegari ef síðustu tveir hlaupararnir hætta á lokahringnum. Þegar Geerts og Steyaert luku 124. hringnum saman og ákváðu að hefja ekki þann næsta var hvorugur þeirra því lýstur sigurvegari. Það skipti þó engu máli, því tvíeykið — og aðdáendur ekki síður — var himinlifandi með sameiginlegt met sitt í bakgarðshlaupi. Þeir eiga líka nú heimsmetið sem verður ekkert grín að slá.
Bakgarðshlaup Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Njarðvík - Valur | Geta Njarðvíkingar rétt skipið af? KR - Ármann | Halda KR-ingar sigurgöngunni áfram? Höttur - ÍR | Hörkuleikur fyrir Austan Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Sjá meira