Valgerður fer aftur frá SÁÁ Eiður Þór Árnason skrifar 21. október 2026 17:46 Valgerður Rúnarsdóttir er fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga. Vísir/Arnar Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir stjórn samtakanna enn ekki hafa brugðist við athugasemdum sínum og starfsmanna. Hún hefur nú lokið störfum hjá SÁÁ eftir að hafa snúið tímabundið aftur á sjúkrahúsið.
RÚV greindi fyrst frá. Valgerður sagði upp störfum í september eftir að starfslokasamningur var gerður við fyrrverandi forstjóra SÁÁ, hefur verið gagnrýnin á stjórn samtakanna og sakað hana um óeðlileg afskipti af heilbrigðisstarfseminni. „Það hefur ekkert breyst. Ég sem sagt kom til baka þarna af því að það var verið að stofna þarna einhverja millistjórn en þetta tekur allt lengri tíma. Ég er búin að koma þarna inn núna sem sagt í þrjár vikur að aðstoða og ekkert þörf á því að ég sé þarna áfram.“ Í lok september sagði Valgerður þetta tímabundna ráðstöfun til að tryggja vinnufrið við endurskoðun samnings SÁÁ við Sjúkratryggingar. Jón Áki Jensson var ráðinn tímabundið sem framkvæmdastjóri lækninga eftir uppsögn Valgerðar en sagði svo starfi sínu lausu eftir tvær vikur í starfi. Valgerður segist hafa starfað síðustu vikur sem „læknir á gólfinu“. Sérðu ekki fram á að sækjast eftir því að snúa þarna aftur? „Jújú, það hefur ekkert breyst hjá mér. Það er bara allt eins. Ég vil helst ekki vinna neins staðar annars staðar en ég vil vinna með því fólki sem við erum búin að byggja upp þarna síðustu árin. Kannski á eitthvað eftir að breytast, ég er ekkert að segja það. En ég er allavega ekki áfram að vinna á gólfinu, ég er búin að vera í þrjár vikur til þess að styðja við starfsfólkið. Það var svona svolítið erfið staða á þessum tíma.“ Finnst þér eitthvað hafa verið brugðist við þínum athugasemdum, annarra og fyrrverandi stjórnenda? „Nei, ekkert. Af hálfu stjórnar SÁÁ hefur allt verið óbreytt. Mér finnst það svolítið ótrúlegt.“ Valgerður segir að hægt hafi verið að taka fleiri sjúklinga inn á Vog á síðustu vikum en vísar að öðru leyti á stjórnendur sjúkrahússins. Áður var greint frá því að Vogur starfaði einungis á um helmingsafköstum á meðan biðlisti væri eftir meðferðarþjónustu. Um tíma voru engir nýir sjúklingar teknir inn vegna manneklu og einkum skorts á læknum. Valgerður hefur sakað framkvæmdastjórn SÁÁ um að hafa bolað Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra SÁÁ, úr starfi. Eftir brotthvarf hennar sögðu bæði Valgerður og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, upp störfum. Báðar hafa sakað sömu stjórn um óeðlileg afskipti af faglegri heilbrigðisstarfsemi SÁÁ. Formaður stjórnar SÁÁ hefur vísað báðum ásökunum á bug. Fréttin er í vinnslu.
SÁÁ Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir E. coli greindist í neysluvatni íbúa Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Sjá meira