Innlent

Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið.

Agnar Már Másson skrifar
Lögreglan greinir frá þessu.
Lögreglan greinir frá þessu.

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir að valvarlegt slys varð á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa.

Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu á Facebook:

Í gærkvöldi barst tilkynning til lögreglu og sjúkraliðs um alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, nánar tiltekið á Gæsavatnaleið.

Slysið átti sér stað þegar 10 manna hópur ferðafólks á jeppum voru að losa fastan jeppa. Ljóst var strax í upphafi að um alvarlegt slys var að ræða og voru viðbragðsaðilar sendir á hæsta forgangi á vettvang.

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Björgunarsveitir fluttu samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp við komuna þangað í nótt.

Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið upplýst um slysið.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×