Sport

Gunnar Lárus sigraði Bakgarðshlaupið

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Garpur I. Elísabetarson skrifa
Gunnar Lárus þegar hann kom í mark sem sigurvegari.
Gunnar Lárus þegar hann kom í mark sem sigurvegari. Vísir/Viktor Freyr

Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi fór fram um helgina í Elliðarárdalnum. Fimmtán hlauparar hlupu af stað í hádeginu á laugardag og fór Gunnar Lárus Karlsson með sigur úr býtum eftir 69 hringi.

Bakgarðshlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra hring á klukkustund, eins oft og hægt er. Hlaupið er haldið alla jafna tvisvar sinnum á ári en nú er komið að landsliðakeppninni þar sem þeir fimmtán hlauparar sem hafa farið hvað lengst taka þátt.

Íslensku hlaupararnir kepptu á móti hlaupurum í 67 öðrum löndum í því hver getur enst lengst. Phil Gore frá Ástralíu á heimsmetið sem eru 119 hringir og því 119 klukkustundir. Þorleifur Þorleifsson átti Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi sem eru 62 hringir en með þessum sigri er Gunnar Lárus nýr Íslandsmetshafi með sína 69 hringi.

Guðjón Sigurðsson var í öðru sæti og er svokallaður aðstoðarmaður en hann datt í hring númer 68 og þar með lauk keppnninni.

Hlaupararnir fimmtán sem skipuðu íslenska landsliðið eru Þorleifur Þorleifsson, Mari Jaersk, Þórdís Ólöf Jónsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Guðmundur Lúther Hallgrímsson, Sylwester Kalucki, Gunnar Lárus Karlsson, Tómas Þór Jacobsen, Sölvi Snær Egilsson, Adam Komorowski, Friðrik Benediktsson, Þuríður Elín Þórarinsdóttir, Hekla Hannesdóttir, Oddur Máni Malmberg og Hildur Guðný Káradóttir.

Hér getur þú fylgst með hvernig hinum liðunum gengur.

Fylgst var með í vaktinni hér fyrir neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×