Bo Johansson er látinn Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2026 06:50 Bo Johansson var landsliðsþjálfari Íslands 1990-91. Vísir/Getty Bo Johansson, fyrrum landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, er látinn 83 ára að aldri. Danska ríkisútvarpið greinir frá andláti hans en Johansson þjálfaði íslenska landsliðið á árunum 1990-91.
Auk þess að stýra íslenska landsliðinu þá stýrði hann félagsliðum í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Noregi. Þá var Johansson landsliðsþjálfari Dana á HM í Frakklandi árið 1998 og á EM í Belgíu og Hollandi árið 2000. Hann hætti eftir Evrópumótið en þar var árangur Dana langt undir væntingum og töpuðu þeir öllum leikjum sínum án þess að skora mark. Bo Johansson var fæddur í Kalmar í Svíþjóð 28. nóvember árið 1942 og hóf þjálfaraferil sinn í Kalmar FF árið 1973 en færði sig yfir til nágrannaliðsins Östers árið 1979 og gerði liðið að sænskum meisturum tvö ár í röð, árin 1980 og 1981. Johansson stýrði Panionos í Grikklandi áður en hann tók við sem landsliðsþjálfari Íslands árið 1990. Hann stýrði landsliðinu í undankeppninni fyrir EM árið 1992 sem liðið hóf á 1-0 heimasigri gegn Albaníu. Við tóku fimm eins marks töp í röð gegn Spánverjum, Tékkum, Frökkum og Albaníu en Johanssonen hætti með íslenska liðið áður en undankeppninni var lokið vegna fjölskylduaðstæðna. Síðasti leikur hans sem landsliðsþjálfari Íslands var gegn Dönum í byrjun september árið 1991. Á seinni árum stýrði Johansson meðal annars IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni og Molde í Noregi sem hann gerði að bikarmeisturum þar í landi árið 2005.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira