Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Sunna Sæmundsdóttir skrifar 13. október 2026 12:00 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að búast megi við samgöngu- og jafnvel rafmagnstruflunum á Vestfjörðum þar sem stórhríð er spáð á morgun. vísir/samsett Lægðin sem fer yfir landið á morgun hefur alla burði til þess að verða söguleg, að mati veðurfræðings. Icelandair hefur boðið farþegum í innanlandsflugi að breyta bókunum sínum. Líkur eru á rafmagnstruflunum á Vestfjörðum en áhrifin verða ekki mikil á höfuðborgarsvæðinu ef spá gengur eftir.
Gular viðvaranir taka gildi klukkan sex í fyrramálið á Suðurlandi þegar lægðin kemur upp að landinu. „Þá kemur til með að hvessa verulega með suðurströndinni. Þetta er svona Vestmannaeyjaveður snemma í fyrramálið,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og bætir við að það muni einnig hvessa á höfuðborgarsvæðinu en þó ekki tiltakanlega. „Síðan fara skilin norður yfir og það rignir frá þeim um land allt af dálítilli ákefð fyrri part dagsins. Síðan er að sjá sem veður versni verulega á Vestfjörðum og utanverðu Snæfellsnesi.“ Appelsínugul viðvörun vegna stórhríðar tekur gildi síðdegis á Vestfjörðum og svo á Norðurlandi vestra þegar líður á kvöldið. Einar segir líkur á samgöngutruflunum á svæðinu. „Og jafnvel þannig veður að af því hljótist rafmagnstruflanir. Þetta er alveg þannig veður að fólk þarf að halda sig heima.“ Veðurviðvaranir sem verða í gildi á morgun, miðvikudag.Vísir/Veðurstofa Íslands Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur farþegum í innanlandsflugi verið boðið að færa bókanir sínar þar sem búist er við röskunum. Ekki hafa verið gerðar ráðstafanir í alþjóðaflugi og sem stendur er búist við að flugferðir frá Keflavík verði á áætlun. Björgunarsveitir eru þá í viðbragðsstöðu og vel er fylgst með spánni. Einar segir einnig fylgst með mögulegri hættu á sjávarflóðum. „Ekki þó á þessum þekktu og mestu flóðastöðum hér Suðvestanlands og á Eyrarbakka, Stokkseyri og í Sandgerði, heldur er það þá frekar austar og svo fyrir norðan.“ Mögulegt Íslandsmet Einar segir lægðina afar óvenjulega á þessum árstíma. „Við þekkjum svona djúpar lægðir yfir miðjan veturinn. Þær eru hins vegar miklu fátíðari á haustin og verða þá kannski til upp úr gömlum fellibyljum eða einhverju slíku. Það er ekkert þannig í gangi núna og það er verið að spá því að loftþrýstingur fari niður fyrir 940 hektópasköl hér sunnanlands um miðjan dag á morgun og það væri þá með því allra lægsta og jafnvel kannski það lægsta sem mælst hefur í mjög langri loftvogarmælisögu Íslands, það er að segja í október,“ segir Einar.
Veður Samgöngumál Rafmagn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira