Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Aron Guðmundsson skrifar 13. október 2026 09:32 Glódís Perla Viggósdóttir leiðir Ísland inn á Laugardalsvöllinn í kvöld gegn Króatíu. Getty/Bradley Collyer Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði segir íslenska landsliðið ekki mega fara fram úr sér nú þegar liðið er svo stutt frá því, en samt langt, að tryggja sér sæti á HM í Brasilíu. Hún hélt einnig spilunum þétt að sér aðspurð um vítaspyrnur sínar.
Ísland er þremur leikjum frá HM í Brasilíu á næsta ári. Svo nálægt en samt svo langt frá þessum draumi sem leikmenn eins og Glódís Perla hafa verið að eltast við lengi. Það að vera svona nálægt þessum draumi slær stelpurnar ekki út af laginu. Fjórum mörkum yfir í undanúrslitaeinvíginu gegn Króatíu fyrir seinni leikinn í dag og sæti í úrslitaeinvíginu í augsýn en bara næsti leikur sem gildir. Klippa: Glódís hélt spilunum þétt að sér „Við tökum þett bara einn leik í einu,“ sagði Glódís Perla, landsliðsfyrirliði á blaðamannafundi í gær. „Við eigum eftir að taka mörg skref áður en við getum sagt að þetta sé innan seilingar. Eitt skref í einu, við þurfum að taka hvert skref virkilega vel til þess að þetta gangi upp. Við getum ekki farið fram úr okkur. Þrjú stór verkefni í viðbót til þess að láta þennan draum verða að veruleika,“ Varnarmenn skoruðu þrjú af fjórum mörkum Íslands í fyrri leiknum gegn Króötum. Ágætis montréttur sem hægt væri að fara inn á æfingar með til þess að stríða framherjum liðsins. „Þetta er liðsíþrótt og skiptir ekki alveg máli hver skorar. En ég get alveg ímyndað mér að framherjunum sé farið að kitla í að fara skora,“ sagði Glódís sem skoraði einmitt eitt marka Íslands í umræddum leik gegn Króötum úr vítaspyrnu en að auki lagði hún upp tvö mörk. Í viðtali við Guðmund Aðalstein hjá Fótbolti.net eftir fyrri leikinn gegn Króötum ytra sagði Glódís Perla að vítaspyrna sín hefði geta verið betri, þrátt fyrir að boltinn hafi endað í netinu sagðist hún myndu skoða það að skjóta í hitt hornið næst. Aðspurð hvort hún hafi tekið ákvörðun um það og hvort hún hafi æft vítaspyrnur milli leikja vildi Glódís lítið gefa upp, skiljanlega: „Ég get ekkert gefið það upp hér,“ sagði Glódís og hló. „Þær gætu verið að hlusta. Auðvitað er maður alltaf að hugsa og pæla í hlutunum. Við Cecilía æfum þetta svolítið saman.“ Seinni leikur Íslands og Króatíu í undanúrslitum umspils fyrir HM 2027 í Brasilíu hefst klukkan hálf sex á Laugardalsvelli í dag. Ísland 4-0 yfir í einvíginu og mjög nálægt því að tryggja sæti sitt í úrslitaeinvíginu. Leik kvöldsins verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira