Innlent

Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða

Smári Jökull Jónsson og Telma Tómasson skrifa
Fyrstu gulu viðvaranirnar taka gildi klukkan sex í fyrramálið.
Fyrstu gulu viðvaranirnar taka gildi klukkan sex í fyrramálið. Vísir/Anton Brink

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur varað við slæmu ferðaveðri sem fram undan er og biðlar til fólks um að flýta ferðum sínum eða bíða þar til veðrið hefur gengið yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu í gærkvöldi.

Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið, fyrst á suður- og Suðausturlandi þar sem gular viðvaranir taka gildi klukkan sex í morgunsárið, ef spár ganga eftir. 

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur varað við slæmu ferðaveðri sem fram undan er og biðlar til fólks um að flýta ferðum sínum eða bíða þar til veðrið hefur gengið yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu í gærkvöldi.

Lægðin færir sig síðan til vesturs og gert ráð fyrir 15-25 metrum á sekúndu og snörpum vindhviðum við Faxaflóann og Breiðafjörðinn þegar líður á morguninn og talsverðri úrkomu. Ferðaveður verður varasamt og lausamunir geta fokið. 

Versta spáin er fyrir norðanverða Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra þar sem gera á norðan stórhríð, með hvassviðri, lélegu skyggni og snjó á vegum, sem sagt engu ferðaveðri. 

Þar taka appelsínugular viðvaranir gildi síðdegis á morgun og gilda inn í nóttina.


Tengdar fréttir

Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist

Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×