Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Aron Guðmundsson skrifar 12. október 2026 17:16 Andri Lucas Guðjohnsen fagnar marki sínu með Blackburn um nýafstaðna helgi Vísir/Getty Tony Mowbray, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, skorar á framherja sinn, íslenska landsliðsmanninn Andra Lucas Guðjohnsen, að rjúfa 20 marka múrinn á tímabilinu. Andri hefur verið iðinn við kolann upp á síðkastið.
Íslendingurinn kom Blackburn Rovers á bragðið um nýliðna helgi í 2-1 sigri gegn Cardiff City á heimavelli í ensku B-deildinni. Andri Lucas er nú búinn að skora fjögur mörk í átta leikjum fyrir Blackburn í B-deildinni og að auki skoraði hann tvö mörk og lagði upp eitt í nýafstöðnum landsleikjaglugga með íslenska landsliðinu. Tony Mowbray skoraði á Andra Guðjohnsen að skora 20 mörk á tímabilinu eftir að mark hans kom Blackburn á bragðið í verðskulduðum 2-1 sigri á Cardiff. Íslenski framherjinn Andri Guðjohnsen átti gjöfult landsleikjahlé þar sem hann skoraði í tveimur af fjórum leikjum landsliðsins, og í fyrsta byrjunarliðsleik sínum fyrir Blackburn í rúman mánuð hélt hann áfram á sömu braut þegar hann braut ísinn á 28. mínútu með snyrtilegri afgreiðslu – fimmta mark hans fyrir félagið á tímabilinu. Mowbray var himinlifandi með mark Andra og skoraði á hann að bæta við fleirum. „Hann er nokkuð fjölhæfur framherji sem er líkamlega sterkur og getur haldið boltanum, unnið skallabolta og framlengt okkar sóknir. Hann veit upp á hár hvar markið er og finnur sig vel milli línanna,“ sagði Mowbray eftir sigurinn gegn Cardiff og bætti við: „Hvert lið þarf framherja sem skilar mörkum sem færa okkur sigra. Hann verður að stefna að því að ná 20 mörkum á þessu tímabili og vonandi fleirum. Ég er ánægður með hann og himinlifandi með að hann skoraði aftur. Hann skoraði nokkur mörk snemma í landsleikjahléinu, skoraði aftur núna og skoraði líka fyrir okkur snemma á tímabilinu. Mér líkar vel við Andra, hann er virkilega góður knattspyrnumaður, dæmigerður framherji sem veit hvar markið er.“ Framherjar nærast á mörkum og vonandi heldur Andri Lucas áfram að raða þeim inn. Blackburn vermir 13. sæti ensku B-deildarinnar sem stendur og er ekki langt frá umspilssæti þegar aðeins níu umferðir eru liðnar af deildinni.
Enski boltinn Fótbolti Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Sjá meira