Fótbolti

Jón Dagur og fé­lagar enn með fullt hús

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar hans í Herthu Berlín eru í stuði þessi dægrin.
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar hans í Herthu Berlín eru í stuði þessi dægrin. @herthaberlin

Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Herthu Berlín sem vann 2-1 sigur á Greuter Furth í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag. Hertha er með fullt hús á toppi deildarinnar.

Liðin mættust á Ólympíuvellinum í Berlín í dag og gat Hertha viðhaldið fullkominni byrjun liðsins á leiktíðinni.

Omar Sillah virtist koma Greuter Furth yfir á 60. mínútu leiksins en eftir endurskoðun myndbandsdómara var markið dæmt af. Aðeins fimm mínútum síðar lagði Josip Brekalo upp mark fyrir bakvörðinn Mads Pedersen sem veitti Herthu Berlín forystuna.

Miðjumaðurinn Paul Seguin skoraði svo annað mark Herthu tíu mínútum fyrir leikslok, aftur eftir stoðsendingu Króatans Brekalo.

Jóni Degi Þorsteinssyni var skipt af velli á 87. mínútu og skömmu síðar skoraði Jannis Heuer fyrir Greuter en það dugði skammt.

Herta vann 2-1 sigur og er áfram með fullt hús stiga, 21 stig eftir sjö leiki, á toppi deildarinnar, fjórum stigum á undan Nurnberg sem er í öðru sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×