Viðskipti innlent

Stýrivextir á­fram átta prósent

Árni Sæberg skrifar
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Þetta segir í yfirlýsingu nefndarinnar, sem gefin var út klukkan 08:30. Þar segir einnig að verðbólga hafi aukist enn frekar frá því í sumar eins og búist hafi verið við. Hún mælist nú 5,9 prósent og hefi ekki verið meiri í tvö ár. Aukning mældrar verðbólgu hafi fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hafi hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega fjórum prósentum um nokkra hríð.

„Þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar. Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði. Í ljósi þessarar óvissu og hversu þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar hafa verið telur peningastefnunefnd rétt að viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Viðskiptabankarnir sannspáir

Frá því að síðasta ákvörðun nefndarinnar var tekin hefur verðbólgan sem áður segir aukist um 0,6 prósentustig en rekja má aukninguna að mestu leyti til hækkunar á eldsneyti. Í byrjun september var tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti felld niður auk þess sem eldsneytisverð hefur hækkað á heimsmarkaði.

Bæði Landsbankinn og Íslandsbanki höfðu spáð því að stýrivextir yrðu óbreyttir, meðal annars með vísan til þess að aukning verðbólgu byggist helst á hækkun eldsneytis.

Blaðamannafundur klukkan 09:30

Þeir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu kynna ákvörðun peningastefnunefndar á blaðamannafundi klukkan 09:30.

Fundinn má sjá í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×