Handbolti

Langmarka­hæst í Olís-deildinni en á­fram úti í kuldanum

Sindri Sverrisson skrifar
Íslenska landsliðið er brátt á leið á stórmót en mætir fyrst Pólverjum í tveimur vináttulandsleikjum.
Íslenska landsliðið er brátt á leið á stórmót en mætir fyrst Pólverjum í tveimur vináttulandsleikjum. vísir/Vilhelm

Arnar Pétursson hefur valið 18 leikmenn í síðustu tvo leiki íslenska kvennalandsliðsins í handbolta áður en hann velur svo lokahópinn fyrir EM í Rúmeníu í desember.

Ísland á fyrir höndum tvo vináttulandsleiki við Pólverja ytra fimmtudaginn 22. október og laugardaginn 24. október.

Eftir æfingaviku á Íslandi í september gefst þarna kærkomið tækifæri til þess að skerpa á öllum áherslum áður en stelpurnar okkar stíga á stóra sviðið á EM í desember þar sem þær spila með Slóveníu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi í riðli.

Á meðal þeirra sem ekki komast í landsliðshópinn er Jóhanna Margrét Sigurðardóttir sem farið hefur á kostum í Olís-deildinni í vetur og er þar langmarkahæst. Jóhanna hefur skorað 51 mark, eða tæplega 13 mörk að meðaltali í leik, í fyrstu fjórum umferðunum fyrir topplið Hauka.

Andrea Jacobsen, Alexandra Líf Arnarsdóttir og Dana Björg Guðmundsdóttir eru ekki heldur í hópnum að þessu sinni, né nýliðarnir Embla Steindórsdóttir, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir en allar voru þær valdar í æfingahópinn í september. Inn í hópinn að nýju kemur hins vegar línumaðurinn öflugi Elísa Elíasdóttir.

Landsliðshópinn sem mætir Pólverjum má sjá hér að neðan.

Landsliðshópur Íslands:

Markmenn:

  • Hafdís Renötudóttir, Valur (80/5)
  • Sara Sif Helgadóttir, Haukar (25/0)
  • Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (1/0)

Aðrir leikmenn:

  • Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Thuringer HC (16/11)
  • Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (75/104)
  • Elín Klara Þorkelsdóttir, Savehof (37/145)
  • Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (42/90)
  • Elísa Elíasdóttir, Valur (33/33)
  • Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (24/39)
  • Katrín Tinna Jensdóttir, HH Elite (37/42)
  • Lilja Ágústsdóttir, Sachsen Zwickau (27/19)
  • Lovísa Thompson, Benfica (41/75)
  • Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (11/1)
  • Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (14/16)
  • Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (49/204)
  • Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (7/12)
  • Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (7/2)
  • Thea Imani Sturludóttir, SCM Craiova (98/224)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×