Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. október 2026 09:15 Mynd af lögreglubíl í Noregi. Myndin tengist ekki fréttinni með öðrum hætti. vísir/epa Mikill viðbúnaður lögreglu var í bænum Halden í morgun eftir skotárás þar sem tveir létust og einn særðist. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins. Þeir þrír sem urðu fyrir skotum voru allir hluti af veiðihópi.
Lögreglan hefur tryggt vettvang og ekki er talin hætta á ferðum fyrir almenning. Árásarmaðurinn var ekki hluti af umræddum veiðihóp. Halden hefur komið á fót neyðarstjórn vegna málsins en skotárásin átti sér stað snemma í morgun og sendi lögregla á svæðinu frá sér tilkynningu vegna þessa rétt fyrir klukkan átta að staðartíma. Klukkan ellefu staðfesti lögreglan að tveir hafi verið skotnir til bana. Sá þriðji er þungt haldinn á gjörgæsludeild Ullevål-spítalans. Norska ríkisútvarpið (NRK) greinir frá. Halden er suðaustan við Osló en þar búa rúmlega 30 þúsund manns. Lögreglan á svæðinu rannsakar nú málið. Íbúar á svæðinu segja í samtali við NRK að viðbúnaður lögreglu hafi verið umfangsmikill. Minnst þrjár þyrlur sinntu útkallinu. Fredrik Holm, bæjarstjóri Halden, segir að neyðarstjórn sinni nú málinu. „Við vinnum að því að ná yfirsýn yfir málið og erum í samstarfi við lögregluna til að safna réttum upplýsingum. Við undirbúum okkur til að sinna aðstandendum eins og þörf krefur.“
Noregur Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira