Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar 3. október 2026 17:31 Í júní 2025 ávarpaði Logi Einarsson menningarráðherra styrkhafa Tónlistarsjóðs: „Þrátt fyrir að við stöndum frammi fyrir aðhaldskröfum í opinberum útgjöldum er mikilvægt að tryggja öflugt umhverfi fyrir tónlistarfólk til að halda áfram að skapa og miðla.“ Hann bætti við: „Sköpunarkrafturinn sem býr í íslenskri tónlist er verðmæti sem við verðum að hlúa að – líka á tímum áskorana.“ Falleg orð, sögð við hátíðlegt tækifæri. En hvað segja tölurnar? Þegar nýi Tónlistarsjóðurinn var lögfestur árið 2023 var í kostnaðarmati gert ráð fyrir að framlag til hans yrði 244,8 milljónir króna árið 2025. Raunverulegt framlag það ár varð hins vegar 212,6 milljónir. Framlagið lækkaði síðan í 209 milljónir árið 2026 og í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að það fari niður í 186,3 milljónir. Þróunin er sláandi – og erfitt að túlka hana öðruvísi en sem dapurleg skilaboð frá stjórnvöldum til íslensks tónlistarfólks. Fyrirhugað framlag árið 2027 er 58,5 milljónum króna lægra en gert var ráð fyrir að sjóðurinn fengi árið 2025 í kostnaðarmatinu með nýju tónlistarlögunum. Það jafngildir tæplega 24% lægra framlagi að nafnvirði – án þess að tekið sé tillit til verðbólgu. Þetta gerist á sama tíma og sjóðurinn ræður aðeins við lítið brot af þeim verkefnum sem til hans leita. Í seinni úthlutun ársins 2026 bárust 431 umsókn en aðeins 47 verkefni fengu styrk. Sótt var um rúmar 704 milljónir króna en tæpar 58 milljónir voru til úthlutunar. Árangurshlutfallið var aðeins 11%, samanborið við 15% í sömu úthlutun árið áður. Það er um fjögurra prósentustiga lækkun á einu ári – eða um 27% hlutfallsleg lækkun. Í seinni úthlutun þessa árs fékk því aðeins um ein af hverjum tíu umsóknum brautargengi. Þetta eru hamfarir fyrir íslenskt tónlistarlíf. Vandinn er ekki skortur á góðum verkefnum. Vandinn er að sjóðurinn hefur ekki bolmagn til að styðja nema pínulítinn hluta þeirra metnaðarfullu verkefna sem þangað leita. Samt er svar stjórnvalda frekari niðurskurður. Til hvers er Tónlistarsjóður? Samkvæmt 7. gr. tónlistarlaga nr. 33/2023 er lögbundið hlutverk Tónlistarsjóðs: „Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði. Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis.“ Stór hluti íslensks tónlistarlífs byggist á vinnu sjálfstætt starfandi tónlistarfólks sem hefur atvinnu af fjölbreyttum tónlistarstörfum. Fyrir þennan hóp er Tónlistarsjóður einn mikilvægasti hluti þeirra innviða sem gera atvinnulíf tónlistarfólks mögulegt á Íslandi. Þegar tónlistarhópur, hátíð eða tónleikaröð fær verkefnastyrk stendur hann undir margvíslegum kostnaði verkefnisins. Til verða launuð störf fyrir tónlistarfólk, annað listafólk, framleiðendur, tæknifólk og fjölmarga aðra. Almenningur nýtur þess síðan í formi fjölbreytts og lifandi tónlistarlífs. Stuðningur úr Tónlistarsjóði getur jafnframt opnað dyr að mun stærri erlendum sjóðum, þar sem alþjóðleg verkefni krefjast gjarnan mótframlags frá þátttökulöndunum. Tiltölulega lítil íslensk fjárfesting getur þannig orðið forsenda þess að mun meira fjármagn fáist inn í íslenskt tónlistarlíf. Er ekki illa ráðið að loka á þess háttar möguleika? Stundum þarf mjög lítið til að missa mjög mikið Æ oftar heyrum við í tónlistarlífinu af metnaðarfullum verkefnum sem komast ekki til framkvæmda vegna þess að umsóknum í Tónlistarsjóð er hafnað. Nýlegt dæmi er þrjátíu ára gömul sumartónleikaröð í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar sem var lögð niður eftir að ekki fékkst nokkur hundruð þúsund króna styrkur úr Tónlistarsjóði. Styrkurinn var forsenda þess að hægt væri að halda starfinu áfram – starfi sem hafði skapað fjölmarga tónleika fyrir borgarbúa og hundruð launaðra verkefna fyrir tónlistarfólk í þrjá áratugi. Þetta er aðeins eitt af mörgum slíkum dæmum. Styrkur úr Tónlistarsjóði er oft sú fjárhagslega brú sem þarf til að verkefni geti orðið að veruleika. Hann stendur nær aldrei undir öllum kostnaði, en með miðasölu, öðrum styrkjum og oft mjög miklu eigin framlagi er hægt að láta verkefnin ganga upp. Þegar þessa brú vantar getur verkefnið fallið niður – jafnvel þótt aðrir styrkir, samstarfsaðilar eða erlendir sjóðir séu tilbúnir að leggja því lið. Þegar verkefnasjóður hefur ekki bolmagn til að sinna hlutverki sínu leggjast ekki aðeins dýrmæt verkefni af heldur missir fólk líka vinnuna sína. Færri eru ráðnir, alþjóðlegt samstarf stöðvast og tónlistarfólkið sjálft vinnur oftar kauplaust. Mýmörg dæmi eru um að fólk þurfi jafnvel að borga með sér. Þetta gerist á sama tíma og skýrsla um skapandi greinar, unnin fyrir stjórnvöld, sýndi að hver króna sem hið opinbera ver í menningu og skapandi greinar verður að um þremur krónum í hagkerfinu. Það er því erfitt að sjá niðurskurð til Tónlistarsjóðs sem raunverulega hagræðingu. Þegar verkefni falla niður hverfa störf og tekjur – og þar með skatttekjur sem ella hefðu orðið til. Tónleikar og viðburðir verða ekki að veruleika og tækifæri til að sækja erlent fjármagn geta glatast. Þegar verkefnum er haldið áfram þrátt fyrir skort á stuðningi hverfur kostnaðurinn heldur ekki. Honum er ýtt yfir á einstaklingana sem halda tónlistarlífinu gangandi – fólk sem tekur áhættuna, vinnur kauplaust eða greiðir jafnvel með eigin verkefnum. Eldmóður er ekki rekstrarmódel Á endanum gefst fólk upp á starfsvettvangnum. Bágborið starfsumhverfi leiðir til atgervisflótta því eldmóður er ekki rekstrarmódel. Tónlistarfólk verður að geta starfað samfellt við fag sitt, ekki aðeins öðru hverju þegar styrkur fæst á nokkurra ára fresti. Kæra stjórnmálafólk: Ég efast ekki um að þið viljið tónlistarfólki vel. Staðan er samt grafalvarleg fyrir sjálfstætt starfandi tónlistarfólk. Þess vegna bið ég ykkur um að grafa ekki undan starfsgrundvelli okkar með niðurskurði á Tónlistarsjóði. Ef stjórnvöld meina það sem þau segja um mikilvægi þess að „tryggja öflugt umhverfi fyrir tónlistarfólk“ þarf að sjá þess stað í fjárveitingunum. Annars fer ekki saman hljóð og mynd. Það þarf að auka framlag til Tónlistarsjóðs – ekki minnka það. Íslenskt tónlistarfólk hefur svo sannarlega gert sitt og skapað landinu ómetanleg verðmæti. Í breska dagblaðinu The Guardian birtist fyrir nokkru grein þar sem spurt var hvers vegna Ísland væri orðið stórveldi í klassískri tónlist. Financial Times spurði nýlega hvers vegna Ísland væri í fararbroddi í endurnýjun klassískrar tónlistar og sagði ekkert annað land hafa umbreytt sinfónískum hljómi af jafn miklu hugviti á 21. öldinni. Nýlega fjallaði einnig The Independent um íslensku menningarsenuna. Þegar íslenskt tónlistarlíf vekur slíka athygli á alþjóðavettvangi ætti svarið að vera augljóst: Við eigum að hlúa að því, styrkja það og skapa því skilyrði til að halda áfram að vaxa. Nú þurfa stjórnvöld hins vegar að sýna í verki að þau skilji mikilvægi starfsvettvangsins og það verðmæta framlag sem íslenskt tónlistarfólk leggur til samfélagsins. Upphæðirnar sem um ræðir eru afar smáar í stóra samhengi ríkisfjármálanna en geta skipt sköpum fyrir íslenskt tónlistarlíf. Vinsamlegast kynnið ykkur málið, kæra stjórnmálafólk, og gerið betur varðandi Tónlistarsjóð. Annars eru orðin sem falla við hátíðleg tækifæri ekkert nema innantómt hjóm. Þetta er fyrsta grein af nokkrum sem munu birtast á næstunni um starfsvettvang tónlistarfólks á Íslandi. Höfundur er formaður Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT), klassískrar deildar FÍH. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tónlist Tónleikar á Íslandi Menning Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun