Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Samúel Karl Ólason skrifar 4. október 2026 15:01 Þær eru margar kostulegar myndirnar í ár. Nikon Comedy Wildlife Awards Forsvarsmenn hinnar árlegu ljósmyndakeppni Nikon Comedy Wildlife Photography Awards hafa birt þær myndir sem keppa til úrslita þetta árið. Myndirnar sýna villt dýr við skondnar og oft undarlegar aðstæður.
Eins og hvert einasta ár sem keppnin hefur verið haldin bárust fleiri myndir til hennar en nokkru sinni áður. Að þessu sinni voru þær rúmlega tíu þúsund talsins og teknar í 112 löndum heimsins. Til mikils er að vinna þar sem sigurvegari keppninnar fær að fara í sérstaka safarí-ferð um Masai Mara. Einnig eru Nikon myndavélar og aðrir munir í verðlaun. Frekari upplýsingar má finna á vef NCPWA. Bestu myndir síðasta árs má svo finna hér að neðan. NCWPA eru haldin árlega og er þeim ætlað að ýta undir dýravernd á heimsvísu og þetta árið vinna forsvarsmenn keppninnar með Born Free Foundation, sem eru alþjóðleg dýraverndarsamtök sem einsetja sér að vernda dýr í útrýmingarhættu og hýbýli þeirra. Sigurvegarar keppninnar verða opinberaðir í desember. Þessi ungi bavíani sem virðist halda á foreldri sínu er víst kallaður Herkúles og það eðlilega.Andt Parkinson/Nikon Comedy Wildlife Awards Vatnabuffallinn Doris með fallega nýja klippingu.Andy Rouse/Nikon Comedy Wildlife Awards Lög segja að maður eigi alltaf að stugga við vini þegar hann er að reima. Ég vissi ekki að ljón hefðu sambærilegar reglur.Barbara Seiberl-Stark/Nikon Comedy Wildlife Awards Héri snyrtir sig á miðjum akri en virðist vera að hlæja.Carolyn Moore/Nikon Comedy Wildlife Awards Þegar maður er þreyttur, þá verður maður að sofa. Sama á hverjum maður sefur.Celine Nic Oireachtaigh/Nikon Comedy Wildlife Awards Góðir félagar á góðri stundu. Eða tvö rándýr að reyna að éta hvort annað. Það er erfitt að segja.Charles Janeson/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessi fíll mun hafa gengið borubrattur upp að hópi kýra en orðið rosalega feiminn á síðustu metrunum. Ef hann sér þær ekki, geta þær varla séð hann.Cliff Fawcett/Nikon Comedy Wildlife Awards Úff, þetta virðist hafa verið vont. Smá misreikningur í stökki milli trjáa getur reynst sársaukafullur.David Lee/Nikon Comedy Wildlife Awards Ég get svarið það að þessi beiða er að biðja mig um að teikna sig eins og stelpurnar í París!Diego Perez/Nikon Comedy Wildlife Awards Tveir gíraffar og tré í Masai Mara.Dirk Koster/Nikon Comedy Wildlife Awards Það var nú hálf dónalegt af ljósmyndaranum að vera að mynda selina í þessum atlotum.Doug Gimesy/Nikon Comedy Wildlife Awards Slappað af í baði og spáð í lífið og tilveruna.Duy Thong Vu/Nikon Comedy Wildlife Awards Vísindamenn eru sífellt að ganga of langt í tilraunum sínum.Eigil B Jensen/Nikon Comedy Wildlife Awards Hversu tjillaður er hægt að vera? Jú, svona tjillaður, eða vitlaus. Kannski blindur.Eric Boren/Nikon Comedy Wildlife Awards Aaaarg, ég svaf yfir mig!Fabi Fregonesi/Nikon Comedy Wildlife Awards Lítill konungur í ríki sínu.Hannah Dietl/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessi var eitthvað að brúka sig við mömmu sína.Heather Cudworth/Nikon Comedy Wildlife Awards Eru hlébarðar farnir að stunda jóga?Homagni Sahana/Nikon Comedy Wildlife Awards Þetta er reiður fugl! Það er væntanlega verið að fara að skjóta honum í teygjubyssu á fullt af svínum.Jan Wittmer/Nikon Comedy Wildlife Awards Leynilegur koss.Jeetendra Chaware/Nikon Comedy Wildlife Awards Mér finnst mjög hæpið að sá sem tók þessa mynd sé á lífi í dag.Ka Chun Jacky Sung/Nikon Comedy Wildlife Awards Það er óhætt að segja að þessi ugla lenti í röngu tréi.Kevin Lohman/Nikon Comedy Wildlife Awards „Hvaða hljóð er þetta?“ virðist þessi fiskur vera að spyrja sig að. Þá heyrir hann í hausnum á sér: „Durum.......... durum......... durum........ durum....... durum...... durum..... durum.... durum... durum.. durum. durum“Kyo Chen/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessi fluga var í endurbótum á heimili sínu þegar ljósmyndara bar að garði.Lee Frost/Nikon Comedy Wildlife Awards Þetta er mynd af mjög svo þunglyndum sænskum greifingja, eða Pablo Escobar (Meme-ið). Ég er ekki viss. Þarna sat hann víst í um tuttugu mínútur án þess að hreyfa sig.Lukas Andree Andersen/Nikon Comedy Wildlife Awards Það tók mig leiðinlega langan tíma að fatta að þetta væru tvær uglur.Lynn Emery/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessi kóngasæfill var nú heldur betur ánægður með mörgæsarungana sem hann fann.Mark Jackowski/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessum væri maður ekki til í að mæta í dimmu húsasundi, eða dimmri fjöru. Ég er ekki viss um hvort væri verra.Marek Jackowski/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessir belgísku bjórar höguðu sér hreinlega eins og fyrirsætur.Natalie Veekmans/Nikon Comedy Wildlife Awards Hei, ég vissi ekki að það væru krókódílar í Tyrklandi.Paolo Torre/Nikon Comedy Wildlife Awards Hann er ekki hetjan sem skógurinn þarfnaðist, heldur hetjan sem skógurinn átti skilið.Rémi Schnel/Nikon Comedy Wildlife Awards Kung fu kamelljón!Robert Gondek/Nikon Comedy Wildlife Awards Skoskur haukur við fimleikaæfingar.Robert Nairn/Nikon Comedy Wildlife Awards „Fer þessi ekki á Grammið?“Rosie Barrett/Nikon Comedy Wildlife Awards Slappað af í sólinni fyrir erfiðan dag í Alaska.Scott Suriano/Nikon Comedy Wildlife Awards Tveir stökkbreyttir fílar á ferðinni um Afríku.Shailza Singhal/Nikon Comedy Wildlife Awards „Vertu sætur á fjölskyldumyndinni!“Subi Sridharan/Nikon Comedy Wildlife Awards Hvernig íslenskar maður „spirit animal“? Þetta er allavega mitt.Tanner Mansell/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessi örn er ekki á sýningarpalli í París, eins og göngulagið og líkamsstaðan gefur til kynna, heldur á hafís í Finnlandi. Já, ég átti líka erfitt með að trúa því!Tapani Linnanmäki/Nikon Comedy Wildlife Awards Þessi íkorni virðist hafa mætt birni í náttúrunni. Þá á maður að reyna að virðast eins stór og maður getur.Udo Harms/Nikon Comedy Wildlife Awards
Dýr Grín og gaman Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Fleiri fréttir Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Sjá meira