Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 13:28 Heimir Hallgrímsson stýrir Írum gegn Austurríki í kvöld en stýrði Íslandi gegn Austurríki fyrir tíu árum. GEtty/Stephen McCarthy Austurríkismenn hafa greinilega ekki gleymt sigurmarki Arnórs Ingva Traustasonar á Evrópumótinu í Frakklandi 2016. Tapið gegn Íslandi var rifjað upp fyrir leik þeirra við Írana hans Heimis Hallgrímssonar í Dublin í kvöld. „
Verður tannlæknirinn aftur martröð austurríska landsliðsins?“ var spurt í fyrirsögn austurríska miðilsins Kronen Zeitung í vikunni. Í greininni er rifjað upp að Heimir, sem vissulega er menntaður tannlæknir, var ásamt Lars Lagerbäck þjálfari Íslands í ævintýri liðsins á EM 2016. Ísland mætti þar Austurríki í lokaumferð riðlakeppninnar og þurfti Austurríki sigur til að komast áfram. Liðið lagði allt í sölurnar í lokin til að ná sigurmarki en í staðinn komst Ísland í ógleymanlega skyndisókn sem lauk með sendingu Theodórs Elmars Bjarnasonar á Arnór Ingva sem skoraði. Jón Daði Böðvarsson hafði komið Íslandi í 1-0 en Alessandro Schöpf jafnað metin á 60. mínútu. Nánast öll umræða í kringum írska liðið síðustu daga hefur tengst leikjunum við Ísrael sem margir Írar vilja að sitt lið neiti að spila. Írland vann Ísrael 3-0 á sunnudaginn, eftir 1-0 tap gegn Kósovó í fyrsta leik, en Austurríki hefur unnið báða leiki sína, gegn Austurríki og Kósovó, og er því með sex stig á toppi riðilsins. Sigurlið riðilsins kemst upp í A-deild og ætti einnig að eiga öruggt sæti í umspili fyrir EM 2028 verði þörf á því. Írland er einn af fjórum gestgjöfum EM 2028, ásamt Englandi, Skotlandi og Wales, og hefur UEFA frátekið tvö sæti fyrir gestgjafana. Þeir spila þó allir í undankeppninni en ef færri en tveir gestgjafanna komast beint á EM þá fær sá gestgjafi sem nær bestum árangri í undankeppninni frátekið sæti.
Þjóðadeild karla í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sjá meira