Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 12:04 Rafael Leao var í treyju númer 17 gegn Noregi á sunnudaginn en verður í treyju númer 7 í kvöld. Getty/Torbjorn Tande Cristiano Ronaldo hefur gert vörumerkið CR7 gríðarlega vinsælt og vill ávallt spila í treyju númer sjö. Nú þegar hann hefur yfirgefið portúgalska landsliðið tekur nýr leikmaður við því númeri.
Rafael Leao, hinn 27 ára gamli kantmaður Galatasaray, verður í treyju númer sjö hjá Portúgal í kvöld þegar liðið mætir Danmörku í Kaupmannahöfn. Ronaldo flaug í burtu frá Kaupmannahöfn í gærkvöld vegna ósættis við landsliðsþjálfarann Jorge Jesus sem lét Ronaldo ekkert spila í 2-1 sigrinum gegn Noregi í Osló á sunnudaginn. Í þeim leik var Leao í treyju númer sautján. Ronaldo mun hafa verið nóg boðið eftir að Jesus tók hann út úr byrjunarliðinu fyrir leikinn við Noreg, lét hann hita upp í seinni hálfleik en setti hann samt aldrei inn á. Í þeim leikjum sem Ronaldo hefur ekki getað spilað með Portúgal í gegnum árin hafa nokkrir leikmenn klæðst treyju númer sjö. Núna lítur hins vegar út fyrir að Ronaldo hafi spilað sinn síðasta landsleik og að þar með verði Leao sá sem klæðist treyjunni til frambúðar. Portúgal hefur unnið fyrstu tvo leiki sína undir stjórn Jesus, gegn Noregi og Wales, en Danmörk vann Wales eftir að hafa tapað fyrir Noregi. Danmörk og Portúgal eigast við í Kaupmannahöfn klukkan 18:45 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.
Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sjá meira