Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Árni Sæberg skrifar 1. október 2026 13:05 Hugverkastofan er til húsa í Katrínartúni. Vísir/Vilhelm Ísland er í 26. sæti landa í heiminum í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar, WIPO, og lækkar um tvö sæti frá því í fyrra. Ísland var í 17. sæti vísitölunnar árið 2021 og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Hugverkastofunni segir að Ísland haldi stöðu sinni nokkuð vel á milli ára þegar litið er til aðstæðna til nýsköpunar og sé þar í 21. sæti en hafi verið í 20. sæti í fyrra. Þegar hins vegar sé horft til afraksturs nýsköpunar hafi Ísland fallið niður í 33. sæti, úr 29. sæti í fyrra og úr 16. sæti árið 2021 og hafi aldrei verið neðar á listanum. „Það er mjög jákvætt að sjá að aðstæður til nýsköpunar eru hér almennt taldar nokkuð góðar en það er hins vegar umhugsunarefni að góðar aðstæður og fjárfesting í nýsköpun virðast ekki skila sér nægilega vel í afurðum, fyrirtækjum og útflutningi. Nýsköpunarvísitala WIPO veitir gott tækifæri til að greina hvar skóinn kreppir, hvað við erum að gera vel og hvað við getum gert betur til að færa aðstæður og afrakstur nýsköpunar nær því sem gerist á hinum Norðurlöndunum. Það er t.d. mjög áhugavert að sjá að hlutfallslega færri háskólanemar útskrifast hér úr vísinda- og tæknigreinum en almennt gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við og fer frekar fækkandi. Þar eru bersýnilega tækifæri til úrbóta,“ er haft eftir Borghildi Erlingsdóttur, forstjóra Hugverkastofunnar. Sviss efst Þá segir í tilkynningu að Sviss, Svíþjóð, Bandaríkin, S-Kórea, Singapore og Bretland skipi fimm efstu sæti listans í ár. Ísland sé nú í 15. sæti listans af 39 Evrópuþjóðum. Hin Norðurlöndin raðist sem fyrr hátt á listanum, þar sem Svíþjóð sé í næstefsta sæti eins og í fyrra, Finnland í 7. sæti, Danmörk í 9. sæti og Noregur í því 21. Nýsköpunarvísitalan sé sett saman úr hátt í 80 mismunandi mælikvörðum sem tengist annars vegar aðstæðum til nýsköpunar og hins vegar afrakstri nýsköpunar. Meðal annars sé litið til útgjalda til rannsókna og þróunar, hátækni, mannauðs og hugverkaverndar. Mælikvarðarnir séu flokkaðir niður í sjö stoðir nýsköpunar; innviði, stofnanir, þróunarstig atvinnulífs, afrakstur skapandi greina, þróunarstig markaðar, mannauð og rannsóknir og afrakstur þekkingar og tækni. Gæta beri að því að þeir mælikvarðar sem notaðir eru við gerð nýsköpunarvísitölunnar hafi tekið breytingum á milli ára og því beri að taka samanburði á milli ára með varúð. Fyrir Ísland sé einnig nokkuð um að gögn vanti eða að byggt sé á nokkurra ára gögnum. Innviður og stofnanir í góðum málum Loks segir að Ísland skori hátt í ár fyrir innviði og stofnanir en hins vegar lágt fyrir mannauð og rannsóknir og fyrir afrakstur þekkingar og tækni. Helsta ástæða þess að Ísland fellur á listanum á milli ára sé lækkun á einkunn fyrir afrakstur skapandi greina, sem skýrist af lækkun einkunnar fyrir nokkra mælikvarða en einnig af því að önnur lönd hafa hækkað í einkunn. „Þegar litið er til einstakra mælikvarða skorar Ísland hæst allra landa fyrir rafmagnsframleiðslu á íbúa, notkun á umhverfisvænni orku og fjölda höfuðléna og er í þriðja sæti fyrir fjölda samninga um áhættufjármagn miðað við landsframleiðslu og fjölda vísindagreina. Þá stendur Ísland vel að vígi varðandi stöðugt viðskiptaumhverfi (4. sæti), kvikmyndaframleiðslu (5. sæti), þekkingarfrek störf (6. sæti), útgjöld til menntamála (7. sæti) og sameiginlegar birtingar opinberra rannsóknastofnanna og atvinnulífs.“ Ísland skori hins vegar lágt fyrir stærð innanlandsmarkaðar (133. sæti), landsframleiðslu miðað við orkunotkun (130. sæti), fjölda hönnunarskráninga miðað við landsframleiðslu (107. sæti), framleiðniaukningu vinnuafls (102. sæti), hlutfall háskólanema sem útskrifast úr STEM-greinum (100. sæti), fjölbreytni innlendrar iðnaðarframleiðslu (98. sæti), hlutfall útflutnings skapandi greina af heildarviðskiptum (93. sæti), þróun snjallforrita (92. sæti), hátækniframleiðslu (82. sæti) og verðmæti einhyrninga (58. sæti).
Nýsköpun Mest lesið Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Sjá meira