Körfubolti

Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur

Sindri Sverrisson skrifar
Þóra Kristín Jónsdóttir er lykilmaður hjá Haukum en missir af byrjun tímabilsins vegna meiðsla.
Þóra Kristín Jónsdóttir er lykilmaður hjá Haukum en missir af byrjun tímabilsins vegna meiðsla. vísir/Hulda Margrét

Pálína Gunnlaugsdóttir spáði silfurliði Hauka aðeins sjötta sæti í Bónus-deild kvenna í körfubolta í vetur þegar hún fékk það hlutverk að staðsetja Haukaliðið í upphitunarþætti Körfuboltakvölds.

Í upphitunarþættinum skiptust sérfræðingarnir á að setja nöfn liða á stöðutöfluna og þó að það hafi verið laus pláss í 4. og 5. sæti ákvað Pálína að setja sitt gamla lið enn neðar eða í 6. sæti.

„Þær eru þynnri en vanalega. Við erum að sjá nýjan þjálfara í brúnni sem kemur væntanlega með nýjar áherslur inn. Ég held að við séum með það sterk lið þarna, betur mönnuð en Haukana, að það sé erfitt að setja þær eitthvað ofar en þetta [í sjötta sæti],“ segir Pálína

Klippa: Pálína setti Hauka í sjötta sæti

Þjálfarinn Emil Barja hefur kvatt Hauka og er tekinn við karlaliði Stjörnunnar en við starfi hans tók Viktor Marinó Alexandersson sem verið hafði aðstoðarþjálfari.

Haukar taka á móti Fjölni í 1. umferð Bónus-deildarinnar í kvöld en fram kom í Körfuboltakvöldi að liðið þyrfti að spjara sig án Þóru Kristínar Jónsdóttur vegna meiðsla.

„Þær byrja mótið án Þóru sem var frábær í fyrra og hitteðfyrra og er búin að vera einn besti leikmaðurinn í deildinni. Það verður áhugavert að sjá hvernig Viktor nær að móta liðið með stelpunum sem núna eru til staðar,“ sagði Pálína en brot úr þættinum má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×