Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar 29. september 2026 14:00 Nú þegar gerist það að sjór flæðir yfir bryggjur á sumum stöðum á landinu á stórstraumsflæði. Hvað gerist þegar grunnstaða sjávar hefur hækkað um hálfan metra og stórstreymi, djúp lægð og álandsvindur fara saman? Í desember 2025 gaf Veðurstofa Íslands út skýrslu sem sýnir hvernig hækkandi sjávarstaða getur breytt sjávarflóðahættu við Ísland á þessari öld og þeirri næstu. Niðurstöðurnar kalla ekki aðeins á sjóvarnir í framtíðinni. Þær kalla á umræðu og ákvarðanir núna um hvar og hvernig við byggjum. Lítil árleg áhætta getur orðið stór Veðurstofan reiknar út mögulega útbreiðslu 20, 50 og 200 ára sjávarflóða við núverandi aðstæður og árin 2100 og 2150. Heitin lýsa árlegum líkum, ekki föstu millibili: tuttugu ára flóð hefur 5% líkur á hverju ári, 50 ára flóð 2% og 200 ára flóð 0,5%. Það er auðvelt að vanmeta 0,5% árslíkur. Ef gert er ráð fyrir óbreyttum líkum og óháðum atburðum eru um 22% líkur á að 200 ára flóð verði að minnsta kosti einu sinni á 50 árum og 39% á 100 árum. Fyrir hús og innviði sem eiga að standa í áratugi er þetta umtalsverð áhætta. Sjávarstaðan verður auk þess ekki óbreytt. Með hækkandi sjávarstöðu getur flóð sem nú telst 200 ára atburður orðið mun tíðara. Samkvæmt sviðsmyndum Veðurstofunnar er hnattræn hækkun sjávarstöðu árið 2100 metin 77-88 sentimetrar miðað við meðaltal áranna 1995-2014. Árið 2150 er hækkunin metin 1,32-1,98 metrar. Hvað þýðir þetta við Ísland? Sjávarborð við Ísland hækkar ekki alls staðar jafn mikið. Þar hefur áhrif meðal annars landris, landsig og jöklabráðnun. Veðurstofan metur hækkun til 2100 á bilinu um 40-65 sentimetrar á nokkrum þeirra staða sem sérstaklega eru skoðaðir. Við Hafnarfjörð er til dæmis gert ráð fyrir 45-63 sentimetra hækkun, Reykjavík 46-64 sentimetrum og Ólafsfjörð 44-62 sentimetrum. Hálfs metra hækkun sjávarstöðu er ekki bara hálfur metri til viðbótar í einstöku flóði. Hún hækkar varanlega grunnstöðuna sem hvert stórstreymi og hvert óveður byrjar frá. Aðstæður sem nú valda litlum vandræðum geta því síðar leitt til flóða. Ofan á hækkandi sjávarstöðu bætast óveður og miklar öldur Sjávarföll ráða grunnstöðunni en ofan á hana getur bæst áhlaðandi vegna veðurs og öldugangs. Í dýpstu lægðum getur lágur loftþrýstingur hækkað sjávarborð um allt að 80 sentimetra og álandsvindur víða bætt við allt að um 30 sentimetrum. Ölduáhlaðandi er oftast innan við 50 sentimetra en getur orðið meiri. Ekki má þó einfaldlega leggja þessar tölur saman. Samspil loftþrýstings, vinds, sjávarfalla og öldugangs er flókið og staðbundið. Hærri sjávarstaða getur einnig gert stærri öldum kleift að komast nær landi og aukið ágjöf. Öldugangur er ekki tekinn sérstaklega inn í flóðakort Veðurstofunnar. Þar sem ölduáhrif eru mikil getur hættan því verið meiri en kortin ein gefa til kynna. Erum við að byggja á réttum stöðum? Skýrsla Veðurstofunnar gefur sérstakt tilefni til að skoða hvort og hvernig tekið hefur verið tillit til hækkandi sjávarstöðu í fyrirhugaðri uppbyggingu á láglendum strandsvæðum. Í Ólafsfirði eru áform um nýbyggingar á láglendi, meðal annars við Flæðar og Bylgjubyggð nærri Ólafsfjarðarvatni. Á Álftanesi vinnur Garðabær að skipulagi allt að 137 nýrra íbúðareininga á Norðurnesi. Flóðahætta hefur þar verið til umræðu við skipulagsgerðina og umsagnar Vegagerðarinnar hefur verið aflað. Í Hafnarfirði er umfangsmikil uppbygging fyrirhuguð við Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæði, þar sem gert er ráð fyrir allt að 900 íbúðum. Á Ísafirði er unnið að nýju deiliskipulagi miðbæjarins sem gerir ráð fyrir rúmlega 130 nýjum íbúðum, meðal annars nær Pollinum. Þar er flóðahættan þegar hluti skipulagsvinnunnar og gert ráð fyrir styrkingu sjóvarna. Í Reykjavík er gert ráð fyrir 600-700 íbúðum í fyrri áfanga Nýja Skerjafjarðar og síðar frekari byggð, að hluta á landfyllingu. Við Elliðaárvog og Ártúnshöfða er gert ráð fyrir allt að 8.000 íbúðum. Þetta þýðir ekki að öll þessi byggð sé innan skilgreindra flóðasvæða eða að sveitarfélögin hafi ekki tekið tillit til flóðahættu. Hús sem við byggjum nú geta enn staðið árið 2100 og skýrslan gefur tilefni til að spyrja: Erum við að skipuleggja byggð í dag sem komandi kynslóðir þurfa síðan að verja fyrir sjó? Tvennt þarf að gera Við stöndum frammi fyrir tveimur verkefnum sem þarf að vinna samtímis. Í fyrsta lagi þurfum við Íslendingar að fara að taka loftslagsvána alvarlega og draga hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda, rétt eins og aðrar þjóðir. Umfang framtíðarhlýnunar og hækkunar sjávarstöðu ræðst að verulegu leyti af losun heimsins á næstu áratugum. Ef ekki tekst að draga verulega úr losun getur hækkun sjávar haldið áfram öldum saman og numið mörgum metrum. Samkvæmt IPCC gæti hnattræn hækkun sjávarstöðu nálgast 7 metra árið 2300 ef lítið dregur úr losun. Vegna mikillar óvissu um viðbrögð ísbreiða Grænlands og Suðurskautslandsins við hlýnun er jafnframt ekki hægt að útiloka mun meiri hækkun. Í hamfarakenndri frávikasviðsmynd gæti hún náð allt að 16 metrum árið 2300. Í öðru lagi verðum við að búa okkur undir þær afleiðingar sem þegar eru óhjákvæmilegar. Það felur í sér að kortleggja hættusvæði, styrkja sjóvarnir og innviði og forðast að skapa ný vandamál með uppbyggingu þar sem fyrirsjáanleg flóðahætta er mikil. Það væri dýrkeypt skammsýni að byggja í dag og senda reikninginn fyrir varnirnar til komandi kynslóða. Meðfylgjandi myndir úr skýrslu Veðurstofu Íslands sýna hvernig útbreiðsla sjávarflóða kann að breytast á Akureyri, Ísafirði og Ólafsfirði eftir því sem sjávarstaða hækkar. Miðað er við stöðuna eins og hún er núna og sviðsmyndina SSP5-8.5LC árin 2100 og 2150. Mynd með grein Eyþórs Eðvarssonar 29. september 2026. Höfundur er í París 1,5 hópnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun