Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar 29. september 2026 06:30 Umræðan um SÁÁ er á ótrúlegum villigötum. Ásakanir á hendur stjórn SÁÁ um afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi hafa flogið hátt síðustu vikur. Hver heilbrigðisstarfsmaðurinn á fætur öðrum talar eins og enginn hafi vit á þjónustu SÁÁ nema þeir sjálfir, og jafnvel forsvarmenn stéttarfélaga hafa séð sig knúna til að tjá sig og birt ályktanir. En þegar gengið er á viðkomandi, þá verður fátt um svör. Þóra Björk Ingólfsdóttir fyrrverandi fagstjóri á meðferðarstöð SÁÁ á Kjalarnesi var spurð út í þessar endurteknu fullyrðingar í viðtali á Sprengisandi 27. september. Páll Magnússon þáttarstjórnandi spurði Þóru Björk í hverju afskiptin af heilbrigðisþjónustunni hafi falist. Var það af lyfjagjöf eða öðrum meðferðarúrræðum, eða hvað, spurði Páll. „Nei, vissulega ekki. Ekki svona bein afskipti sem slík,“ sagði fagstjórinn fyrrverandi. En hvaða afskipti af meintu faglegu heilbrigðisstarfi er þá verið að tala um? Því svarar Þóra Björk að henni hafi verið gróflega misboðið yfir því að Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur fyrrverandi forstjóra hafi í raun verið bolað út. En er það svo – og ef satt væri, getur ágreiningur milli stjórnar og forstjóra flokkast undir afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi? Ástæður þess að forstjórinn hætti Í tölvupóstsamskiptum sem Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri lækninga, dreifði á stóran hóp starfsmanna og stjórnarmanna SÁÁ, kemur eftirfarandi fram í svari framkvæmdastjórnar til hennar: „Á fundi framkvæmdastjórnar 29.janúar 2026 var ákveðið að skipa stýrihóp utan um innleiðinguna á nýjum samningi við SÍ. Megintilgangur var að tryggja árangursríka innleiðingu á samningnum og að styðja við stjórnendur í innleiðingunni með þátttöku fulltrúa framkvæmdastjórnar og utanaðkomandi ráðgjafa. Vinnan fór vel af stað en fljótlega fór að fækka á fundum og að lokum voru fundir afboðaðir. Á sama tíma var fátt um svör eða misvísandi svör um framgang mála til framkvæmdastjórnar frá fyrrum forstjóra. Í vor var ljóst að framvinda innleiðingar á nýjum samningi var ekki í samræmi við væntingar framkvæmdastjórnar og þar sem stýrihópurinn hafði lognast út, var óskað eftir því skriflega við fyrrum forstjóra að fylgja eftir ákveðnum verkefnum sem framkvæmdastjórnin vildi setja í forgang. Þessum verkefnum átti svo að fylgja eftir á reglulegum stöðufundum. Á fyrsta stöðufundi formanns og varaformanns með fyrrum forstjóra 5. ágúst sl. óskaði fyrrum forstjóri eftir að breyta fundarefninu og lagði fram ósk um starfslok. Jafnframt kynnti fyrrverandi forstjóri hugmyndir sínar um hvernig staðið yrði að starfslokunum og lagði áherslu á að málinu yrði lokið sem fyrst. Eftir að hafa ráðfært sig við lögmann SÁÁ varð ákveðið að verða við beiðni forstjóra.“ Starfi fórnað á altari þvingunar Af þessu má sjá að forstjóranum var ekki bolað út, síður en svo. Hún virðist einfaldlega ekki hafa treyst sér til að fylgja verkefnum eftir. Þess vegna kemur verulega á óvart að fyrrum framkvæmdastjóri lækninga hafi ákveðið að fórna sínu eigin starfi til þess að þvinga framkvæmdastjórn SÁÁ til að hætta sjálfsögðu og eðlilegu aðhalds- og eftirlitshlutverki sínu með störfum forstjóra. Við því var ekki orðið. Þessi uppákoma öll hefur að ósekju stórskaðað orðspor SÁÁ. Ljóst er að árásin á stjórn SÁÁ með fullyrðingum um afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi á sér enga stoð. Engin dæmi hafa verið sýnd um slíkt afskipti þó eftir því hafi verið gengið. Staðreyndin er einfaldlega sú að nokkrir stjórnendur hjá SÁÁ fóru í fýlu vegna þess að þeir fengu ekki að hafa allt eftir sínu höfði. Þeir vildu taka völdin af stjórn SÁÁ, en sleppa því að bera ábyrgðina. SÁÁ í 49 ár Í tengslum við þessa umræðu eru upphrópanirnar gegn stjórn og fyrirkomulagi reksturs SÁÁ stórfurðulegar. Í 49 ár hafa félagsmenn og kjörin stjórn SÁÁ byggt upp og staðið á bak við starfsemina með dyggum stuðningi íslensku þjóðarinnar. Til að útfæra þjónustuna hefur stjórn SÁÁ síðan ráðið fólk með þekkingu hvert á sínu sviði; ráðgjafa, sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og lækna. En ávallt hefur SÁÁ leitt uppbygginguna, áherslurnar, forgangsröðunina, samningagerðina og fjáröflunina. Stjórn SÁÁ og nýtt stjórnendateymi vinna nú hörðum höndum að því að endurreisa traust, starfsfrið og stöðugleika innan samtakanna eftir það alvarlega tjón sem valdabrölt fyrrverandi starfsmanna hefur valdið. Afleiðingarnar hafa verið víðtækar og stórskaðað bæði starfsemi, ímynd og innviði SÁÁ. Mikilvægt er að fólk átti sig á því hvernig vandinn á Vogi er til kominn. Höfundur er byggingameistari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar