Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Freyja Þórisdóttir skrifar 28. september 2026 18:08 Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS. Vísir/Vilhelm Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur skilað umsögn um frumvarp vegna fjárlaga 2027 en þar gagnrýnir sambandið harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda. Sambandið geti með engu móti stutt það óbreytt og telur að „stjórnvöld þurfi að horfast í augu við eigin ábyrgð á verðbólguþróuninni“.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá sambandinu en þar segir einnig að í umsögn sinni bendi SGS á að launafólk hafi „lagt sitt af mörkum til stöðugleika með hóflegum langtímakjarasamningum. Forsenda þeirra hafi verið að allir tækju þátt í að halda aftur af verðlagi svo ná mætti niður verðbólgu og vöxtum.“ Þrátt fyrir það geri stjórnvöld ráð fyrir því að fjölmargir skattar og gjöld hækki um 5,2 prósent og kílómetragjaldið um nær 16 prósent. Sambandið hafi kallað eftir því að verð- og gjaldskrárhækkanir verði ekki umfram 2,5 prósent út gildistíma kjarasamninga; það gildi um alla. „Það gengur ekki að kalla eftir ábyrgð launafólks, sveitarfélaga og atvinnulífs en að ríkið sjálft hækki skatta og gjöld langt umfram þau mörk sem aðrir eru beðnir um að virða,“ segir sömuleiðis í tilkynningunni. SGS bendir sérstaklega á að hækkun kílómetragjalds komi illa við íbúa landsbyggðarinnar, þar sem vegalengdir til og frá vinnu og þjónustu séu víða langar og almenningssamgöngur ekki raunhæfur kostur. Hækkunin geti jafnframt aukið flutningskostnað og þrýst upp vöruverði. Frumvarpið feli einnig í sér breytingar á uppfærslu persónuafsláttar og skattþrepa sem leiði til þess að einstaklingar greiði samtals 3,1 milljarði meira í skatt árið 2027 en ella. „Stjórnvöld áætla sjálf að ráðstafanir frumvarpsins hækki vísitölu neysluverðs um 0,32 prósent. SGS telur því að stjórnvöld þurfi að horfast í augu við eigin ábyrgð á verðbólguþróuninni.“
Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kílómetragjald Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Aukafundur borgarfulltrúa: Rætt um frekari hagræðingu Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Rætt um frekari hagræðingar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Sjá meira