„Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Valur Páll Eiríksson skrifar 28. september 2026 15:30 Arnar segir margt jákvætt hafa verið í leik Íslands þrátt fyrir óhagstæð úrslit um helgina. Fólk hafi skiljanlega lítinn áhuga á því og krefjist betri úrslita. Getty/Jane Barlow Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson segir margt jákvætt hafa verið í leik landsliðsins við Eistland um helgina sem lauk með jafntefli. Liðið hefur sætt gagnrýni fyrir.
Arnar sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Lúxemborg í dag þar sem íslenska landsliðið mætir heimamönnum á morgun í öðrum leik riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar. Íslenska liðið hefur sætt gagnrýni eftir 1-1 jafntefli við Eistland í fyrsta leik á laugardaginn var en liðið var töluvert frá sínu besta. Klippa: Blaðamannafundur KSÍ í Lúxemborg Arnar sagði eftir leik um helgina að margir í íslenska liðinu hafi ekki verið upp á sitt besta og var spurður hvort hann hygðist gera breytingar á liðinu fyrir morgundaginn. „Það verða einhverjar breytingar. Eðli málsins samkvæmt. Albert er ekki að spila og svo er þetta fjögurra leikja gluggi,“ segir Arnar. „Ég held að margir hafi ekki verið á sínu 100 prósent besta, þeir voru 90 prósent, en það bara dugar ekki á þessu stigi,“ „Það skilur milli feigs og ófeigs í þessum bransa. En við hlupum eins og ég veit ekki hvað í þessum leik, áttum geggjaða pressu og augnablik í þessum leik sem enginn hefur áhuga á að tala um. En ég skil það mjög vel,“ segir Arnar. Arnar sé meðvitaður um að Íslendingar geri kröfu um úrslit burt séð frá jákvæðum punktum sem hann nefnir. „Fólk vill úrslit núna og fyrir mig að vera að tala um góð augnablik við höfum átt. Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það. Það hefur enginn áhuga á að vita að markið okkar var frábært og ég skil það bara mjög vel. Ég ætla því ekki að gaspra meira um það,“ „Núna snýst þetta um að ná góðum úrslitum á morgun. Og þetta er ekki verra en það að ef við náum að vinna leikinn erum við líklega á toppi riðilsins og allir verða hamingjusamir,“ segir Arnar. Arnar sat fyrir svörum ásamt Hákoni Arnari Haraldssyni á fundi dagsins. Hann má sjá í spilaranum að ofan.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjá meira