Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Sindri Sverrisson skrifar 28. september 2026 10:33 Gerson Rodrigues hefur skorað 23 mörk fyrir Lúxemborg, meðal annars gegn Íslandi, en er í banni frá landsliðinu eftir dóm fyrir heimilisofbeldi. Getty/Sebastian Frej Gerson Rodrigues, markahæsti leikmaður landsliðs Lúxemborgar frá upphafi, er í banni frá landsliðinu og mun því ekki mæta Íslandi í leiknum mikilvæga í Þjóðadeildinni annað kvöld.
Rodrigues hlaut átján mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni, fegurðardrottningunni Émilie Boland, og fleiri líkamsárásir. Dóminn hlaut Rodrigues í mars 2024 og áfrýjunardómstóll staðfesti dóminn í apríl á síðasta ári. Rodrigues hélt þó áfram að spila fyrir hönd Lúxemborgar alveg fram í júní í fyrra en eftir harða gagnrýni og mótmæli ákvað knattspyrnusamband Lúxemborgar á endanum að setja leikmanninn í ótímabundið bann frá landsliðinu. Málið leiddi einnig til þess að stofnuð var sérstök óháð siðanefnd sambandsins. Rodrigues hefur skorað 23 mörk fyrir Lúxemborg, þar á meðal í 1-1 jafnteflinu við Ísland á Laugardalsvelli í október 2023, í undankeppni EM. Markahæstur í nýjasta landsliðshópi Lúxemborgar er Danel Sinani, leikmaður Sampdoria á Ítalíu, með 16 mörk í 83 A-landsleikjum, en hann meiddist í 2-1 sigrinum gegn Búlgaríu á laugardaginn. Þar með er Vincent Thill markahæstur í hópnum, með aðeins sex mörk. Sinani og Leandro Barreiro skoruðu mörkin gegn Búlgaríu en Barreiro er 26 ára miðjumaður portúgalska risans Benfica. Leikur Lúxemborgar og Íslands er annað kvöld klukkan 18:45. Bein útsending á Sýn Sport hefst klukkan 18.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Sjá meira