Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar 26. september 2026 12:31 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lögðu mikið undir þegar þær ákváðu að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu sem engin knýjandi nauðsyn var til að halda. Þær veðjuðu á niðurstöðu sem gekk ekki eftir, án þess að ljóst væri hvaða ávinningi ætti að ná. Afleiðingarnar kunna að vera mun alvarlegri en ósigur ríkisstjórnarinnar í atkvæðagreiðslunni gefur til kynna. Ríkisstjórnin stofnaði til ferlis sem vakti væntingar innan Evrópusambandsins. Sambandið lagði sjálft töluvert undir með heimsóknum háttsettra fulltrúa og sýnilegum áhuga á niðurstöðunni. Þar var ekki aðeins um að ræða áhuga á íslenskum innanlandsmálum. Jákvæð niðurstaða hefði getað styrkt ímynd stækkunarstefnu ESB. Þetta vekur jafnframt spurningu um gagnrýni utanríkisráðherra á erlend áhrif í íslenskri lýðræðisumræðu. Gilda sömu viðmið um áhrif allra erlendra aðila, óháð því hvaðan þau koma? Ábyrgðarlaus könnunarleiðangur? Í nokkrum pistlum sem greinarhöfundur birti á bloggsíðu Heimssýnar í janúar var gagnrýnt hvernig ríkisstjórnin rammaði fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu inn sem saklausa könnun á vilja þjóðarinnar. „Aðildarviðræður við Evrópusambandið eru ekki könnunarleiðangur. Þær eru yfirlýsing um átt, um ramma og um það valdakerfi sem ríki hyggst tengjast.“ Í öðrum pistli sagði: „Þjóðaratkvæðagreiðsla er aðferð, ekki stefna.“ Þegar stjórnvöld setja atkvæðagreiðslu í forgrunn án þess að gera grein fyrir eigin afstöðu verður aðferðin staðgengill stefnu. Þetta var skrifað sjö mánuðum áður en niðurstaðan lá fyrir. Ákvörðunin um að setja ferlið af stað var sjálf utanríkispólitísk athöfn, óháð því hvernig þjóðin myndi síðar greiða atkvæði. Vonbrigði og pólitískur kostnaður Eftir atkvæðagreiðsluna lýsti forsætisráðherra því yfir að virða yrði niðurstöðuna. Það hafði hún raunar ítrekað áður. Var nokkurn tíma annar kostur í boði? Utanríkisráðherra stendur frammi fyrir öðrum vanda. Hún tók þátt í að vekja væntingar erlendis en hefur jafnframt lagt áherslu á að staða aðildarumsóknar Íslands sé óbreytt. Hvaða skilaboð sendir það samstarfsaðilum Íslands? Vonbrigðin innan ESB komu opinberlega fram. Marta Kos, framkvæmdastjóri stækkunarmála, brást við niðurstöðunni með yfirlýsingum sem fjallað var um í greininni Marta Kos verður að virða niðurstöðuna á Vísi 4. september. ESB hafði séð fyrir sér að Ísland gæti orðið dæmi um auðugt ríki sem þegar nýtur aðgangs að innri markaðnum en kysi engu að síður að sækjast eftir aðild. Nú vaknar öndverð spurning: Er hætta á að stækkunarstefnan fái ímynd samstarfs sem fyrst og fremst laðar að sér efnahagslega veikari ríki? Var samstarfinu stefnt í hættu að óþörfu? Hér er ekki aðeins spurning um tímabundin vonbrigði í Brussel. Ísland hefur um áratugaskeið byggt Evrópusamstarf sitt á EFTA og EES-samningnum. Hvers vegna var talið nauðsynlegt að stofna til ferlis sem gat skapað óvissu um framtíðarstefnu Íslands gagnvart bæði ESB og EFTA-ríkjunum? Hvaða áhrif hefur það haft á traust og fyrirsjáanleika í þessum mikilvægu samskiptum? Samskiptin við Bandaríkin minna jafnframt á að utanríkisstefna verður ekki mótuð út frá einum forseta eða einu kjörtímabili. Björn Bjarnason hefur bent á breyttan tón í samskiptum forsætisráðherra við Donald Trump. Hvernig falla áherslur ríkisstjórnarinnar gagnvart Evrópu og Bandaríkjunum saman í heildstæðri utanríkisstefnu? Þá komum við að því sem hefði átt að liggja fyrir frá upphafi: áhættustýringu. Ríkisstjórnin gat ekki stjórnað niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hún gat hins vegar metið fyrirfram afleiðingar beggja mögulegra niðurstaðna, gætt þess hvaða væntingar hún skapaði erlendis og undirbúið viðbrögð. Íslenskir kjósendur svöruðu afdráttarlaust þeirri afmörkuðu spurningu hvort hefja skyldi aðildarviðræður að nýju. Þeir svöruðu engum öðrum spurningum um leið. Ábyrgðin á samskiptum Íslands við erlenda samstarfsaðila er ekki þeirra. Til þess eru kjörnir fulltrúar. Hvers vegna stofnaði ríkisstjórnin til þessa ferlis, hvaða áhættumat lá fyrir og hvaða áætlanir höfðu verið gerðar um viðbrögð ef svarið yrði nei? Hver ber ábyrgð á þeim kostnaði sem ákvörðunin kann að hafa haft í för með sér fyrir samskipti Íslands við ESB og EFTA-ríkin? Höfundur er hagfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun