Tuchel segir Palmer of oft fjarverandi Stefán Árni Pálsson skrifar 25. september 2026 18:02 Thomas Tuchel þegar hann stýrði enska liðinu í undanúrslitum HM í sumar. Vísir/Justin Setterfield/Getty Images Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að Cole Palmer sé að missa af of mörgum tækifærum til að sanna sig með enska landsliðinu.
Palmer dró sig úr landsliðshópi Englands fyrir komandi leiki vegna meiðsla. Enskir mæta Spánverjum í Þjóðadeildinni annað kvöld. Fjarvera hans kom nokkuð á óvart þar sem hann hefur byrjað alla fimm leiki Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Tuchel segir hins vegar að Palmer hafi spilað með verki og óþægindum og ekki getað beitt sér af fullum krafti. „Eftir því sem ég skil er hann að spila með óþægindum og verkjum og hann getur ekki keppt á hæsta stigi með verki. Hann dró sig því úr hópnum og lét okkur vita, sem og Chelsea,“ sagði Tuchel. Þjóðverjinn segir fjarveru Palmers vera ákveðið áhyggjuefni þegar kemur að stöðu hans hjá landsliðinu. „Þetta er klárlega glatað tækifæri. Hann missir af of mörgum tækifærum. Ég er ekki að kenna honum um það, þetta er bara staðreynd,“ sagði Tuchel. „Hann missir af allt of mörgum landsliðsverkefnum vegna meiðsla og ég vil aðeins treysta á það sem ég sé og upplifi með mínu liði. Til þess þarftu að vera í landsliðshópnum.“ Palmer, sem er 24 ára, var ekki valinn í HM-hóp Tuchels og hefur aðeins þrisvar leikið fyrir England síðan Tuchel tók við landsliðinu í janúar 2025. Palmer er nú erlendis þar sem hann fylgir sérsniðnu æfinga- og endurhæfingarprógrammi vegna meiðslanna. Hann hefur haft með sér endurhæfingarþjálfara frá Chelsea í ferðinni. Tuchel segir þó ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af því að leikmenn setji félagslið sín framar landsliðinu. „Við erum ekki að stjórna álagi. Þegar ég var í félagsliðsþjálfun notaði ég hugtakið landsleikjahlé og þegar maður heyrir það frá hinni hliðinni er þetta allt önnur mynd,“ sagði Tuchel. „Þetta er samkeppnisumhverfi en líka umhverfi sem leikmennirnir elska að vera hluti af. Það er það sem samheldni og bræðralag snýst um.“ Declan Rice, Tino Livramento, Marcus Rashford og Kobbie Mainoo eru einnig farnir úr enska hópnum vegna meiðsla.
Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Sjá meira