Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar 25. september 2026 10:00 Í gær sá ég frétt frá allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem sat í mér. Tugir sendifulltrúa gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, steig í pontu. Sumir bauluðu, og Netanjahú svaraði með hörðum orðum og kallaði þá sem gengu út „siðlausa heigla“. Ég ætla ekki að taka hér afstöðu til Netanjahús, Ísraels, Palestínu eða þeirra hræðilegu átaka sem hafa átt sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs. Útganga er líka skilaboð, og fólk hefur fullan rétt til að senda þau. En skilaboð sem enginn er viðstaddur til að heyra breyta sjaldan miklu. Þess vegna velti ég fyrir mér annarri spurningu: Hvað gerist þegar við erum ekki lengur tilbúin að hlusta hvert á annað? Sameinuðu þjóðirnar voru ekki stofnaðar vegna þess að ríki heims væru sammála, heldur vegna þess að þau eru ósammála. Mannkynið hafði lært með skelfilegasta mögulega hætti hvað gerist þegar samtalið bregst. Tilgangurinn var að búa til stað þar sem andstæðingar gætu setið í sama sal, tekist á með orðum og forðast vopn. Eftir nokkra daga stíg ég upp í flugvél á leið til Nýju-Delí og tek þátt í EFTA–India Prosperity Summit ásamt fulltrúum frá Íslandi og öðrum EFTA-ríkjum. Þar mun fólk úr stjórnmálum, stjórnsýslu og atvinnulífi frá Evrópu og Indlandi ræða viðskipti, fjárfestingar, tækni og samstarf til framtíðar. Ég sé því tvær ólíkar myndir af alþjóðasamskiptum þessa dagana. Í annarri ganga menn út. Í hinni ganga menn inn. Það sem almenningur sér ekki Ég skal viðurkenna að lengi vel hugsaði ég ekki mikið um utanríkismál. Þegar maður byggir fyrirtæki frá grunni hugsar maður um viðskiptavini, vöruna, starfsfólkið og fjármögnunina. Sendiráð, viðskiptasendinefndir og alþjóðasamningar virtust tilheyra öðrum heimi. En eftir því sem verkefni mín hafa orðið alþjóðlegri hef ég áttað mig á einu: Stór hluti utanríkismála er í raun atvinnulíf í vinnufötunum sínum. Almenningur sér ráðherrana, handaböndin og fánana. Það sem sést síður er vinnan á bak við tjöldin. Sendiráð opna dyr, viðskiptafulltrúar tengja saman rétta fólkið og embættismenn hjálpa fyrirtækjum að rata um regluverk. Tengsl sem hafa verið byggð upp árum saman verða til þess að símtali er svarað, fundur fæst og samtal hefst. Sú vinna kemst sjaldan í fyrirsagnir en getur skipt sköpum. Stundum byrjar þetta úti á gangstétt Ég fékk áminningu um þetta í Chicago fyrr á árinu. Ég var á Midwinter-tannlæknaráðstefnunni, fór út að reykja og kynntist forstjóra Alliage International. Við stóðum tveir fyrir utan ráðstefnuhöllina og fórum að tala saman. Þar var engin dagskrá, enginn bókaður fundur og engin PowerPoint-kynning. Ég sagði honum frá Oraxs. Hann sagði mér frá Alliage, alþjóðlegu fyrirtæki á sviði tannlæknatækja og myndgreiningar. Síðan komu fundirnir og tæknilegu samtölin um hvernig Oraxs gæti tengst lausnum Alliage og PreXion. Við fórum að skoða sameiginleg verkefni í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum, og síðar bauð Alliage okkur til San Jose í Kaliforníu til að vinna áfram að samþættingunni. Nú, nokkrum mánuðum síðar, verður Alliage með okkur í Indlandi, þar sem sölustjóri fyrirtækisins skoðar með okkur möguleg verkefni á indverska markaðnum. Því á endanum eru það ekki fyrirtæki eða ríki sem tala saman. Það er fólk. Samningurinn er jarðvegurinn, fólkið þarf að mæta EFTA-ríkin, Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein, gerðu viðskipta- og efnahagssamstarfssamning við Indland sem tók gildi fyrir ári. Samningurinn einn og sér selur enga vöru og stofnar ekkert samstarf. En hann býr til jarðveginn þar sem hlutirnir geta gerst. Síðan þarf fólk að mæta. Ég fer til Indlands með þau fyrirtæki sem ég er að byggja. En ég fer líka sem Íslendingur, og hinum megin á hnettinum verður mjög skýrt hvað það þýðir. Við erum um 400 þúsund manns á eyju í Norður-Atlantshafi. Við munum aldrei keppa við Bandaríkin í stærð hagkerfisins eða Indland í mannfjölda. Sem betur fer þurfum við þess ekki. Styrkur Íslands liggur í trausti, tengslum og stuttum boðleiðum, og við njótum almennt góðs orðspors úti í heimi. Á tímum vaxandi tortryggni er freistandi að segja að hvert land eigi bara að hugsa um sjálft sig. Fyrir litla þjóð er það hættuleg hugsun. Við höfum dafnað þegar við höfum tengst umheiminum, í sjávarútvegi, ferðaþjónustu, orku, vísindum, menningu og tækni. Við höfum aldrei verið stór. Við höfum hins vegar verið tengd. Að hlusta er ekki það sama og að samþykkja Stundum virðist það eitt að hlusta á manneskju vera túlkað sem stuðningur við hana. Það er hættuleg þróun. Að hlusta er ekki að samþykkja. Að tala saman er ekki að gefa eftir. Oft er það einmitt forsenda þess að hægt sé að leysa ágreining. Í viðskiptum lærir maður þetta fljótt. Þú semur ekki við manneskju sem þú neitar að hlusta á, og þú leysir engin vandamál með því að tala eingöngu við þá sem eru sammála þér. Það sama hlýtur að gilda um ríki. Frá Ólympíuleikunum til Eurovision Við sjáum sömu hugsun á öðrum vettvangi. Á Ólympíuleikunum ganga þjóðir heims inn á sama völl, og í Eurovision stígur fólk frá ólíkum löndum upp á sama svið. Auðvitað fylgja þar deilur og pólitík, stundum harðar. En samt gerist eitthvað mikilvægt: Fólk hittist, keppir, fagnar og kynnist. Stundum uppgötvar það að manneskjan hinum megin við landamærin er ekki eins ólík því sjálfu og það hélt. Kannski er barnalegt að halda að vinátta ein og sér geti stöðvað stríð. En það er enn barnalegra að halda að friður verði til án samskipta. Byrjum samtalið Þegar ég hugsa aftur um myndirnar frá New York hugsa ég ekki fyrst um hver hafði rétt fyrir sér. Ég hugsa um salinn, borðin og hljóðnemana, allar þjóðirnar sem voru komnar saman á einum stað. Kerfið er seinlegt og ófullkomið. En valkosturinn við ófullkomið samtal er ekki fullkomið samtal. Hann er ekkert samtal. Eftir nokkra daga sit ég í Nýju-Delí með fólki frá löndum sem eru mjög ólík Íslandi. Við verðum eflaust ósammála um margt. En við mætum. Við tökum í hendur, hlustum og reynum að finna það sem við getum gert saman. Og einhvers staðar í hópnum verða kannski tveir einstaklingar sem hittast fyrir tilviljun og vita ekki enn að samtalið á eftir að breyta einhverju. Alveg eins og gerðist á gangstéttinni í Chicago. Besta leiðin sem mannkynið hefur fundið til að byggja frið er ekki að ganga út úr salnum. Hún er að ganga inn, setjast niður og hlusta. Höfundur er stofnandi tæknifyrirtækja víða um heim. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun