„Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Sindri Sverrisson skrifar 24. september 2026 13:49 Þorsteinn Halldórsson var grátlega nálægt því að stýra Íslandi inn á HM í fyrsta sinn fyrir fjórum árum en fær nú annað tækifæri. Hulda Margrét Þorstein Halldórsson landsliðsþjálfara dreymir ekki síður en leikmenn um að komast á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu næsta sumar. Tvö ljón eru á veginum og framundan mun sanngjarnara umspil en þegar HM-draumurinn dó í Portúgal fyrir fjórum árum.
Þorsteinn fór yfir þessi mál á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag þegar hann kynnti til leiks talsvert mikið breyttan landsliðshóp Íslands, fyrir komandi leiki við Króatíu 9. og 13. október. Sigurliðið úr einvígi Íslands og Króatíu spilar tveggja leikja úrslitaeinvígi við Portúgal eða Norður-Írland, í lok nóvember og byrjun desember, um sæti á HM. Þegar Ísland missti af síðasta heimsmeistaramóti, með tapi í framlengdum leik gegn Portúgal haustið 2022, var aðeins um eins leiks einvígi að ræða og var dregið um það hvort Ísland eða Portúgal yrði á heimavelli. Portúgal hafði þar heppnina með sér eins og Þorsteinn rifjaði upp í aðdraganda einvígisins við Króatíu. „Við gerum okkur grein fyrir að þetta er strembið verkefni. Krefjandi að komast í gegnum þetta. En maður trúir því alltaf og ætlar að stíga þetta skref. Þetta hefur ekki gengið hingað til en við vorum nálægt þessu síðast, og nálægt umspilinu fjórum árum áður,“ sagði Þorsteinn á blaðamannafundi í dag. „Við erum mjög nálægt þessu núna og fáum sanngjarnara umspil núna. Ekki dregin á útivöll gegn svipuðum andstæðingi. Það er meira réttlæti í því,“ sagði Þorsteinn sem dreymir um að stýra Íslandi á heimsmeistaramóti í Mekka fótboltans næsta sumar: „Þær dreymir allar um að komast þetta, og mig líka. Ég er búinn að vera með það ansi lengi í huganum að fara á HM í Brasilíu. Það yrði eitthvað sérstakt og það ætlum við að upplifa saman.“ „Við erum betri en Króatía en þú þarft alltaf að sýna það og sanna það, leggja allt í þetta. Þetta er bara fyrsta skrefið af tveimur sem við þurfum að taka,“ sagði Þorsteinn. Líf og Emelía koma inn sem nýliðar Á meðal leikmanna sem koma inn í landsliðshópinn núna eru nýliðarnir Líf Joostdóttir van Bemmel úr Breiðabliki og Emelía Óskarsdóttir, framherji Danmerkurmeistara Köge, sem spilaði gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu í vikunni. „Ég horfi á Líf sem bakvörð. Hún er búin að vera góð, stóð sig vel á lokamóti EM [U19] í sumar, búin að vera jöfn og að bæta sig heilt yfir í allt sumar með Blikaliðinu,“ sagði Þorsteinn um Líf. Aðspurður hvort hann teldi Emelíu tilbúna til að koma beint inn í landsliðið eða hvort hún væri frekar fengin til að kynnast hlutunum svaraði Þorsteinn: „Bæði og. Hlutirnir geta breyst mjög hratt. Hún er að koma til baka eftir erfið meiðsli sem héldu henni frá vellinum í rúmt ár. Hún hefur verið að stíga vel upp undanfarið, gerði vel gegn Arsenal og hefur verið mjög flott með Köge. Hún er vaxandi, komin með sinn hraða og kraft aftur. Svo er það þannig að þegar ég gef leikmanni tækifæri þá er það hans að sýna og sanna að hann eigi það skilið.“
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Sjá meira