„Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Bjarki Sigurðsson skrifar 23. september 2026 07:34 Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm Allt hefur gengið sinn vanagang á Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir að 26 flugferðum Icelandair hafi verið aflýst vegna verkfalls flugvirkja segir upplýsingafulltrúi Isavia. Hann biðlar til fólks að mæta ekki á Keflavíkurflugvöll ef flugi þess er aflýst.
Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík á miðvikudagsmorgun, í dag, eftir að verkfall flugvirkja hófst á miðnætti. Um er að ræða 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka auk fimm flugferða innanlands frá Reykjavík og til baka. „Samtals hefur þessi aðgerð áhrif á hátt í 5.500 farþega. Félagið vinnur nú hörðum höndum að því að endurbóka farþega og hvetur fólk til að fylgjast vel með og tryggja að samskiptaupplýsingar séu réttar,“ segir í tilkynningu flugfélagsins rétt eftir miðnætti. Gangi allt sinn vanagang Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir stöðuna á Keflavíkurflugvelli nokkuð góða. Hann var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Það eru sem sagt um 26 ferðir sem hefur verið aflýst. Bandaríkjaflugið kom í morgun á Keflavíkurflugvöll og er að koma inn núna en Evrópuflugin eru ekki að fara út og ekki að koma til baka þarna seinni partinn. Ég var í sambandi núna áðan við stjórnstöðina okkar á Keflavíkurflugvelli og þau segja mér að það gangi allt svona, fyrir utan þetta, sinn vanagang,“ segir Guðjón. Flugferðir annarra flugfélaga eru enn á dagskrá. Guðjón segir að einhverjir farþegar Icelandair hafi mætt í morgun á flugvöllinn í leit að upplýsingum. „Annars hefur þetta gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er. Það er ekki mikill fjöldi í flugstöðinni eða neitt slíkt og held ég að samtalið við farþegana hafi verið mjög gott hjá Icelandair. Við höfum svo sem bent á það líka að farþegar, sem hafa átt flug með vélunum sem hefur verið aflýst, að fylgjast vel með á vef okkar og náttúrulega hjá Icelandair. Fylgjast vel með hvort vélar séu komnar á áætlun og annað slíkt og þá ekki koma út á völl nema að flug viðkomandi sé á áætlun,“ segir Guðjón. Önnur flugfélög lenda á vellinum Starfsfólk Isavia sé reiðubúið að aðstoða fólk. „Fólk er náttúrulega eins og alltaf tilbúið að hjálpa og síðan eru rétt tæplega þrjátíu flugferðir, ef mér skjátlast ekki, sem eru að koma inn til okkar í dag hjá öðrum flugfélögum,“ segir Guðjón.
Flug Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Icelandair Bítið Keflavíkurflugvöllur Samgöngumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira