Veður

Gular við­varanir á Suður- og Vestur­landi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa þennan morguninn.
Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa þennan morguninn. Vísir/Vilhelm

Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa vegna vinds. Viðvaranirnar fallar úr gildi klukkan níu. 

Á Suðurlandi er suðaustan 13-23 metrar á sekúndu með vindhviðum að 30-35 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum og austur að Mýrdal. Varasamt er fyrir ökumenn ökutækja sem taka á sig mikinn vind að aka um svæðið. Þá telur Veðurstofan að fólk ætti að huga að lausamunum utandyra. 

Hið sama er uppi á teningnum við Faxaflóa. Hvassar vindhviður eru undir Esju og Hafnarfjalli og úti á Reykjanesskaga. 

Í dag verður austan- og suðaustanátt 13-18 m/s og rigning, en 18-23 syðst framan af degi. Snýst í suðlæga átt 8-18 með skúrum síðdegis, hvassast á norðanverðu Snæfellsnesi, en léttir til norðaustanlands. Hiti sex til fimmtán stig að deginum, hlýjast fyrir norðan.

Sunnan og suðvestan 10-18 og skúrir á morgun, en yfirleitt bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti átta til fjórtán stig. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:

Sunnan og suðvestan 8-15 m/s, en hægari norðvestantil fram eftir degi. Rigning eða skúrir, en þurrt að kalla austantil. Hiti 8 til 14 stig.

Á miðvikudag (haustjafndægur):

Sunnan og suðvestan 5-13 og skúrir, en bjart að mestu á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 12 stig.

Á fimmtudag:

Austan og norðaustan 15-23 og rigning, en talsverð eða mikil úrkoma á suðaustanverðu landinu. Hiti 5 til 10 stig.

Á föstudag:

Norðlæg eða breytileg átt og rigning norðan- og austanlands, jafnvel slydda til fjalla, en úrkomuminna suðvestantil. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:

Norðlæg eða breytileg átt. Rigning eða slydda norðan- og norðvestantil, en snjókoma til fjalla, hiti 2 til 5 stig. Dálítil rigning af og til og hiti allt að 9 stigum í öðrum landshlutum.

Á sunnudag:

Útlit fyrir norðlæga átt. Rigning eða slydda á norðanverðu landinu, en snjókoma á Vestfjörðum. Bjart að mestu sunnan heiða. Hiti 3 til 8 stig, en rétt yfir frostmarki á Vestfjörðum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×