Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar 17. september 2026 12:31 Ég legg það ekki í vana minn að gagnrýna hluti sem ég skil og þekki ekki og er ekki sjálfur að vinna að vera hluti af lausninni á. Ég get ekki haldið í mér í umræðunni sem er farin af stað. Við getum haldið áfram að kenna skólakerfinu um PISA. En einhvern tímann verðum við líka að þora að horfa á umhverfið sem við, fullorðna fólkið, höfum skapað í kringum börnin. Ef metnaðurinn heima er lítill eða enginn, kröfurnar litlar og ábyrgðinni stöðugt hent yfir á skólann, kennarann, þjálfarann eða „kerfið“, þá hafa jafnvel frábærir kennarar og þjálfarar fjandans lítil verkfæri til að vinna með. Þú byggir ekki upp færni, aga, seiglu og metnað á nokkrum klukkustundum á dag ef allt hitt umhverfið vinnur gegn því. Staðan er t.d. orðin þannig að ef þú ætlar að starfa sem þjálfari í þessu umhverfi er beinlínis kostur að vera meðvirk rola, en ókostur að ætla að keyra upp metnað og krefjast þess að krakkar bæti sig. Don’t get me wrong, það er fullt af geggjuðum foreldrum sem eru til í valdeflinguna, en það sem sumir foreldra-vitleysingar fá að vaða uppi án afleiðinga er það sem drepur alla stemninguna í því að keyra upp krakkana og merkilegt hvað sá hópur fær að ráða ferðinni. Ég þekki ekki einn einasta metnaðarfullan þjálfara sem talar ekki um sturlunina í foreldramenningunni. Og enginn af þeim gömlu segir annað en að þetta hafi versnað gríðarlega. Samt þorir enginn þeirra að stíga fram opinberlega. Af hverju? Af því að foreldrakúltúrinn á Íslandi er sennilega einn mest verndaði hagsmunahópur landsins. Og það alvarlegasta: margir af bestu kennurum og þjálfurum sem ég þekki eru orðnir þreyttir. Ekki á börnunum, heldur á því að þeim er sífellt þrengdur stakkur til að gera kröfur. Við tölum endalaust um réttindi, stuðning og vellíðan. Allt skiptir það máli. En við tölum fjandan varla um skyldur, ábyrgð og væntingar og verðum svo hissa þegar metnaðurinn hverfur. Eldgamall sannleikur sem allir eru hættir að tala um: Kröfur eru umhyggja. Ekkert brýtur barn hraðar niður en að finna að enginn trúi því að það geti meira og sé til í að mæta þeim kröfum með alvöru þjálfun. Ef við ætlum í alvöru að bæta árangur barna þurfum við ekki bara betri skóla. Við þurfum kúltúr þar sem foreldrar, kennarar og þjálfarar mega standa saman og segja við börn: Þú getur meira og við ætlum ekki að vanvirða þig með þroskaþjófnaði. Og bara svo því sé haldið til haga: Aþena var stofnuð nákvæmlega til höfuðs þessum kúltúr. Til að byggja umhverfi þar sem kröfur, ábyrgð, metnaður og umhyggja mega fara saman. Og það er ekkert eðlilegt hvað ríkjandi kúltúr berst hart á móti þegar einhver reynir raunverulega að breyta ríkjandi gildum og viðmiðum. Því þegar þú ferð gegn bæði formlegu og óformlegu félagslegu taumhaldi, þá kemur mótspyrnan ekki bara frá kerfinu. Hún kemur úr öllum áttum. Já og gangi okkur vel að breyta ríkjandi kúltúr án átaka. Það gerist ekki. Það er helvíti þykkt í aumingjavæðingunni á Íslandi það get ég sagt ykkur. Höfundur er yngriflokkaþjálfari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein PISA-könnun Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar