Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir skrifar 16. september 2026 11:17 Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að töluverðar hræringar hafa verið í atvinnulífinu undanfarið. Við höfum fengið fregnir af tíðum uppsögnum á starfsfólki og miklar breytingar hafa einnig verið boðaðar eða ákvarðaðar á ýmsum störfum og starfsemi. Það að missa vinnuna er oftast mikið áfall og því fylgir einnig óvissa, ekki síst er varðar fjárhaginn. Atvinnumissir hefur einnig oft í för með sér erfiðar tilfinningar s.s. skömm, reiði, depurð og kvíða. Heilt yfir felur atvinnumissir í sér mikið álag. Mikilvægt er að styðja vel við bakið á þeim sem verða fyrir atvinnumissi. En hvað með þau sem eftir sitja á vinnustaðnum? Í þessari grein er ætlunin að fjalla um þá stöðu sem getur komið upp á vinnustöðum í kjölfar uppsagna og breytinga, og þær áskoranir sem þau sem eftir sitja standa mögulega frammi fyrir í breyttum veruleika. Hvernig líður okkur í breytingum? Það er mannlegt að sækja í ákveðinn stöðugleika og fyrirsjáanleika. Það á einna helst við um grunnþarfir okkar, sem eru helst eins og einhver sagði; fæði, klæði og húsnæði. En við viljum líka hafa fyrirsjáanleika um aðra þætti lífsins, þó það sé einstaklingsbundið að hvaða marki. Breytingar eru hins vegar óhjákvæmilegur hluti lífsins og skapa tímbundna óvissu hvort sem þær eru óvæntar eða skipulagðar, velkomnar eða erfiðar – eða allt í senn. Allar breytingar ógna stöðugleika okkar. Slíkt ástand skapar gjarnan óöryggistilfinningu og ýtir undir streitu hjá okkur. Þegar breytingar standa fyrir dyrum, þá veltum við oft fyrir okkur og höfum jafnvel áhyggjur af því hver verði endanleg útkoma breytinganna. Hvort þær muni hugnast okkur eða verða okkur til góðs. Við vitum jú hvað við höfum, en ekki hvað tekur við. Á sama tíma erum við kannski að syrgja missi sem varð við breytinguna og gamla vinnustaðinn okkar. Við söknum fyrrum vinnufélaga og vinnustaðarins sem við tilheyrðum fyrir breytingar. Sum upplifa sorg, önnur reiði, eða kvíða eða allt samanlagt. Mikilvægt er að vita að þessar tilfinningar eru eðlilegar en einstaklingsbundnar að einhverju leyti. Fólk getur upplifað aðstæður á ólíkan hátt, og ekkert er rétt eða rangt undir þessum kringumstæðum. Hvað er þá til ráða? Við erum í fullum rétti að upplifa reiði, sorg eða aðrar erfiðar tilfinningar. En það getur einnig reynst varhugavert að festast þar og við þurfum á endanum að halda áfram veginn og gera upp við okkur með hvaða hætti. Þegar breytingar eru óvæntar og erfiðar er mikilvægt að huga að því sem hefur gagnast okkur vel áður þegar slíkir áfalla- eða streitutímar hafa herjað á okkur. Þá er mikilvægt að við pössum upp á grunninn okkar; svefn, hreyfingu, matarræði og félagslega stuðningsnetið okkar. Gagnlegt getur verið að draga úr streitutengdum áreitum í einkalífinu og finna það sem nærir okkur andlega og veitir okkur gleði og ánægju. Í vinnunni er gott ráð að leggja áherslu á að einbeita sér að því sem við höfum stjórn á og sleppa tökunum þar sem við höfum ekki stjórn. Með því móti eyðum við ekki óþarfa orku í eitthvað sem við hvort eð er höfum ekki áhrif á, né getum breytt. Jafnframt er gagnlegt að forgangsraða því mikilvægasta, fram yfir síður mikilvæga hluti. Að auki geta viðhorf okkar í breytingum skipt sköpum. Það er, með hvaða hugarfari við tökumst á við breytingar og áskoranir í lífinu. Ætlum við að þrauka í gegnum þetta tímabil eða leggja áherslu á að þrífast? Við höfum alltaf eitthvað val hér. Ætla ég að nálgast breytingarnar af forvitni og skoða möguleg tækifæri fyrir mig og vinnustaðinn með jákvæðu hugarfari? Eða bíða breytingarnar af mér, vona það skásta en búast við hinu versta? Hvor nálgunin ætli sé betri fyrir okkar líðan? Kannski bíða ný tækifæri í breytingum, kannski ekki. En við getum að minnsta kosti verið virk í breytingarferlinu og reynt að hafa áhrif á að gera vinnustaðinn að þeim stað sem viljum starfa á. Við getum nefnilega haft töluverð áhrif á starfsandann og vinnustaðamenninguna sem verður til í kjölfar breytinga. Þrátt fyrir að breytingar séu ekki teknar af starfshópnum sjálfum, getur starfshópurinn tekið ábyrgð varðandi að leggja sig fram við að byggja upp góðan og sálfélagslega öruggan vinnustað. Huga þarf að því að starfsfólk sýni hvert öðru virðingu og samkennd í samskiptum, þrátt fyrir streitutímabil. Mikilvægt er að hver og einn beri ábyrgð á sér, sinni hegðun og vandi sig þar. Einnig að starfsfólk hlúi hvert að öðru og sýni samstöðu og vilja til að byggja upp, með jákvæð viðhorf að leiðarljósi. Ábyrgð stjórnenda er einnig mjög mikil. Þeirra hlutur felst í að vera sýnilegir og aðgengilegir. Miðla upplýsingum vel og jafnóðum. Einnig þurfa stjórnendur að vera fyrirmyndir hvað varðar framkomu og samskipti á vinnustaðnum og leggja línur með starfsfólki um hvernig vinnustað þau vilja byggja upp á ný. Hlúa þarf að starfsfólki, sýna skilning og samkennd og eiga regluleg samtöl eða bjóða utanaðkomandi aðstoð eða handleiðslu hjá sérfræðingum. Það er vel hægt að koma sem öflugur hópur út úr erfiðum breytingum, en til þess þurfa öll að leggjast á eitt, hlúa að sér og starfshópnum, auk þess að viðhafa lausnamiðuð og gagnleg viðhorf. Höfundur er sálfræðingur, mannauðsráðgjafi og meðeigandi Lífs og sálar, sálfræði- og ráðgjafastofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun