Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 16. september 2026 09:36 Bjarna Guðjónssyni var skemmt yfir framgöngu Arnars Freys sem endaði á að fá krampa eftir öll hlaupin. Samsett/Sýn Sport Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, tók virkan þátt í sóknarleik liðsins og minnti oft meira á bakvörð, í sigrinum gegn ÍA í Bestu deildinni um helgina. Sérfræðingum Stúkunnar var skemmt en þeir drógu jafnframt í efa að svona tilburðir sæjust ef KR væri enn í harðri baráttu um titil.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hefur áður hjá Gróttu og Breiðabliki sýnt að hann er óhræddur við að senda markverði sína langt út úr eigin vítateig. „En þetta er á öðru leveli,“ sagði Bjarni Guðjónsson í Stúkunni en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Stúkan - Umræða um markvörð/bakvörð KR „Að nota hann svona í uppspili, að hann komi upp sem hægri bakvörður og jafnvel fram yfir miðju, er náttúrulega algjörlega galið dæmi,“ sagði Baldur Sigurðsson og hafði greinilega gaman af. Hann kvaðst hafa kynnst Arnari og sagði hann algjörlega óttalausan og magnaðan karakter. „Svo er hann greinilega líka mjög flinkur í fótbolta því hann klikkar ekki á sendingum og þetta kostaði ekki mark,“ sagði Bjarni. „Þegar þetta virkar er það voðalega skemmtilegt,“ sagði Bjarni en Baldur sagði algjörlega á hreinu að þetta gæti ekki virkað til lengdar: „Það er alveg stjörnubilað að horfa á þetta. Hann er kominn svo langt út úr markinu og leiðin er svo löng heim, að þetta mun alltaf kosta mark ef þetta verður svona í öllum leikjum. Það er ekki spurning.“ Bjarni sagði þá ljóst að ef meira væri í húfi, eins og til dæmis í leiknum við Víkinga á laugardag þegar Víkingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, þá væri uppleggið líklega annað. „Ef þú ert að keppa á toppnum eða botninum, og markvörðurinn fer að gera þetta og leka inn mörkum… ef sendingin klikkar og Skagamaður skorar af 70 metrum, KR væri að keppa við Víking um að verða meistari og hefði tapað þessum leik, þá hefði ég ekki haft jafngaman af þessu. Og það held ég að eigi við um KR-inga almennt.“
Besta deild karla KR Stúkan Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira