Enski boltinn

Sjáðu svaka­lega sleggju Szoboszlai

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sá smellhitti hann.
Sá smellhitti hann. Getty

Dominik Szoboszlai skoraði mark af dýrari gerðinni er hann innsiglaði 3-1 sigur Liverpool á Tottenham í enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld.

Liverpool vann 3-1 sigur á Tottenham í kvöld. Alexis Mac Allister kom liðinu yfir um miðjan fyrri hálfleik og Cody Gakpo, sem var orðaður við Tottenham í sumar, kom liðinu í 2-0 snemma í síðari hálfleik.

Klippa: Svakaleg sleggja Szoboszlai

Conor Gallagher minnkaði muninn eftir horn með fyrsta marki Tottenham á leiktíðinni en síðan kom sleggjan frá Szoboszlai.

Mikla rigningu gerði undir lok leiks í kvöld og hvort hún hafði eitthvað með það að gera að Szoboszlai nennti ekki öðru en að hreinlega bara bomba á markið þegar hann féll fyrir hann skal ósagt látið.

Markið er í það minnsta sjónarspil enda negldi Ungverjinn boltann í netið, alveg út við stöng, af um 30 metra færi.

Sjá má markið í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×